Tónlistarmessa og fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra.
31. janúar. Tónlistarmessa kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Eyjólfur Eyjólfsson syngur einsöng. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.
Eftir messuna er fundur með þeim sem fermast í vor og foreldrum þeirra í Borgum. Þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með góðgæti á hádegisverðarhlaðborð (tekið verður á móti veitingum í safnaðarheimilinu frá klukkan 10:30).
Sigurður Arnarson, 24/1 2010 kl. 16.42