Góð þátttaka í “Máli dagsins”
Æ fleiri sækja stundirnar sem eru á þriðjudögum frá klukkan 14:30-16:00 í Safnaðarheimlinu Borgum. Tónlistarfólkið Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová stjórna söng með skörungsskap. Á síðasta fundi flutti Stefán Runólfsson, fróðlegt og gott erindi um kælingu hraunsins í Vestmannaeyjagosinu árið 1973. Því næst var boðið upp á veitingar og stundinni lauk með helgistund í umsjón sr. Sigurðar Arnarsonar. Næstkomandi þriðjudag 9. febrúar mun Valgerður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæmis flytja erindi. Auðvitað eru allir velkomnir.
Sigurður Arnarson, 4/2 2010 kl. 21.30