Kynningarfundur um messuhópa.
Guðsþjónusta verður sunnudaginn 21. febrúar n.k. í Kópavogskirkju klukkan 11:00. Á eftir guðsþjónustunni verður kynningarfundur um “Messuhópa” í kapellu safnaðarheimilsins “Borgum” sem er skáhalt á móti Gerðarsafni.
Á undanförnum árum hefur verið að þróast öflugt sjálfboðaliðastarf í nokkrum söfnuðum, að hluta til ávöxtur námskeiðsins Lifandi steinar, sem haldið hefur verið í Hallgrímskirkju í nokkur skipti. Flest hinna sjálfboðnu starfa hafa komið að hjarta safnaðarlífsins, messu sunnudagsins, s.s. að bjóða fólk velkomið við kirkjudyr, sjá um söfnun fjár til góðra málefna, lesa ritningarlestra, aðstoða við útdeilingu og annast kirkjukaffið.
Í Kópavogskirkju verða stofnaðir nokkrir messuhópar í vor til að halda utan um þetta starf. Í hverjum þeirra er ætlunin að starfi 5-8 manns, fólk á ýmsum aldri. Mun hver hópur gegna hlutverki messuþjóna á nokkra vikna fresti og funda í vikunni á undan til undirbúnings messunni með prestinum sem prédikar. Á þeim fundi verður m.a. rætt um guðspjall sunnudagsins og sú umræða hugsuð sem innlegg hópsins til prédikunarinnar. Þá verður aukin áhersla lögð á aðkomu hins almenna prestdóms að bænagjörðinni og munu hóparnir taka að sér að semja og lesa bænir við ákveðin tækifæri. Sjálfboðið starf ætti að vera eðlilegur þáttur í lífi safnaðanna. Það er eðli kristinnar trúar að leita út og gefa af sér. Messuhóparnir í Kópavogskirkju eru ein leið til að finna þeirri þjónustu farveg.
Áhugasöm eru hvött til að koma á fundinn á sunnudaginn kemur. Allar nánari upplýsingar gefur sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is).
Sigurður Arnarson, 15/2 2010 kl. 23.46