Kópavogskirkja

 

Messuþjónar og messuhópar

Eftir guðsþjónustu þann 21. febrúar n.k. verður í Safnaðarheimilinu Borgum kynningarfundur um starf messuþjóna og messuhópa.

Hlutverk messuþjóna er að taka þátt í helgihaldinu, meðal annars með því að taka á móti kirkjugestum og dreifa sálmabókum og messuskrám, lesa ritningarlestra, taka þátt í bænahaldi og aðstoða við altarisgöngu. Hver hópur hittist nokkrum dögum fyrir hverja guðsþjónustu með presti og skiptir meðal annars með sér verkum og ræðir prédikunartexta næstkomandi sunnudags.  Þau sem áhuga hafa á að taka þátt í starfi messuhópa eru beðin um að hafa samband við sr. Sigurður Arnason (sigurdur.arnarson@kirkjan.is).

Sigurður Arnarson, 8/2 2010 kl. 23.16

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 5546820. Kirkja:5541898 · WP · Kerfi RSS