Kópavogskirkja

 

Námskeið um gleðina.

Hefur þú áhyggjur og finnst þér stundum erfitt að líta björtum augum á tilveruna? Vilt þú auka gleðina í lífi þínu og/eða langar þig til þess að rækta trúna betur?

Ef eitthvað af ofannefndu á við þig gæti þetta námskeið hentað þér.

Á námskeiðinu verður fjallað um gleði og hamingju og hvað það er sem eykur lífsgleði fólks. Sérstaklega er fjallað um áhrif trúarinnar á lífshamingjuna og hvað Biblían hefur að segja um það. Kynntar eru markvissar leiðir til þess að efla gleðina í eigin lífi og þar á meðal „best geymda leyndarmálið“ um hvernig má öðlast hamingjuríkt líf.

Kennarar á námskeiðinu eru sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og sr. Bryndís Malla Elídóttir.

©Námskeiðið hefst þriðjudaginn 23. febrúar og lýkur 16. mars og er frá kl. 18.00-19.30 (4 skipti)

©Námskeiðið verður haldið í nýju safnaðarheimili Kársneskirkju í Kópavogi (gegnt Gerðarsafni)

©Létt hressing er í boði

©Það er opið öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu

Skráning fer fram í gegnum síma Breiðholtskirkju: 587-1500 eða með tölvupósti profaust@centrum.is eða hjá Leikmannaskóla kirkjunnar kristin.arnardottir@kirkjan.is s: 528 4000

Námskeiðið er samstarfsverkefni Reykjavíkurprófastsdæmanna og Starfs- og leikmannaskóla kirkjunnar.

Sigurður Arnarson, 17/2 2010 kl. 0.53

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 5546820. Kirkja:5541898 · WP · Kerfi RSS