Kópavogskirkja

 

Vaktsími presta í Kópavogi

Prestar í Kópavogi hafa tekið í gagnið vaktsíma sem notaður er á bakvöktum innan allra fjögurra safnaða Kópavogs. Um er að  ræða síma sem fer á milli 8 prestanna í bænum, viku og viku í  senn, og sinnir útköllum í bænum utan hefðbundins vinnutíma, skrifstofutíma, þ.e. á kvöldin, nætur og um helgar. Þetta þýðir að þegar kalla þarf út prest í útkall í Kópavogi  þá er hringt í þetta númer.  Ef nauðsyn þykir að hafa samband við viðkomandi sóknarprest/presta  þá mun sá prestur sem er á vaktinni meta það og láta þá vita. Skipulagið er  þannig að gert er ráð fyrir einum á bakvakt (handhafa símans) og svo tveimur til vara ef þörf þykir.  Síminn verður tekinn í notkun núna um helgina.  Ætlunin er að sjá og reyna hvernig til tekst á næstu mánuðum. Nýi vaktsíminn í Kópavogi er þessi: 843-0444.

Sigurður Arnarson, 26/2 2010 kl. 17.44

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS