Krakkar í Kópavogskirkju
Um 30 börn á aldrinum 6 og 7 ára sækja nú námskeið sem stendur frá mánudeginum 29. mars til miðvikudagsins 30. mars frá kl. 9-12. Umsjón með námskeiðinu hafa þær Hafdís Huld Þrastardóttir, tónlistarmaður, Alistair, tónlistarmaður, Inga Harðardóttir, guðfræðinemi ásamt sóknarpresti og aðilum úr sóknarnefnd. Börnin hafa meðal annars æft lag eftir Hafdísi Huld, farið í ýmsa leiki úti og inni. Mikil gleði og fjör hefur verið.
Sigurður Arnarson, 31/3 2010 kl. 0.07
