Kópavogskirkja

 

Bókmenntaguðsþjónusta

Fyrsta bókmenntaguðsþjónustan í Kópavogskirkju var í gær.  Form guðsþjónustunar var hefðbundið að öðru leyti en því að í stað ritningarlestara var lesin kafli úr verkinu Faust af Nínu Dögg Filippusdóttur, leikkonu og Gísla Erni Garðarsyni, leikara og leikstjóra.  Í stað prédikunar fjallaði Gísli Örn um verkið sem byggt er á þjóðsögu sem meðal annars Göthe samdi ljóð um.  Lenka Mátéová, organisti Kópavogskirkju og kór kirkjunnar fluttu svo verk og sálma sem tengjast efni verksins og Þórunn Elín Pétursdóttir söng einsöng.  Gerður var góður rómur af þessari nýbreytni í helgihaldinu og stefnt er að bjóða reglulega upp á guðsþjónustur og messur með þessum hætti í framtíðinni. Tilgangur bókmenntaguðsþjónustu er að fjalla um ákveðin bókmenntaverk og er fyrirmyndin frá Þýskalandi en Akureyrarkirkja hóf þessa nýbreytni í upphafi þessa árs.

Sigurður Arnarson, 19/4 2010 kl. 12.50

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS