Fermingardagar og fyrirkomulag ferminga vorið 2011
Vorfermingar árið 2011 verða í Kópavogskirkju 27. mars, 3. apríl og 10. apríl og hefjast þær allar klukkan 11:00.
Fermingarnámskeið verður dagana 16-20. ágúst n.k. í safnaðarheimilinu Borgum, fyrir þau sem það kjósa, þau þurfa þá ekki að sækja fræðslu nema í nokkur skipti yfir veturinn en mæta reglulega í guðsþjónustur og messur yfir veturinn.
Dregið verður um fermingardaga á fundi eftir guðsþjónustu sem fermingarbörn og foreldrar þeirra eru boðin sérstaklega til sunnudaginn 5. september n.k. og hefst klukkan 11:00.
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is
Sigurður Arnarson, 19/4 2010 kl. 13.08
