Hátíðarguðsþjónusta á Páskamorgni.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju klukkan 08:00 á Páskamorgni. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Morgunnmatur í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt á móti Gerðarsafni) á eftir og á sama tíma verður helgistund fyrir börnin í kapellunni. Á eftir henni er páskaeggjaleit fyrir börnin í nágrenni safnaðarheimilisins.
Sigurður Arnarson, 3/4 2010 kl. 22.21