Fermingar vorið 2011
Vorfermingar árið 2011 verða í Kópavogskirkju 27. mars, 3. apríl og 10. apríl og hefjast þær allar klukkan 11:00.
Fermingarnámskeið verður dagana 16-19. ágúst n.k. í safnaðarheimilinu Borgum frá kl.10:00-16:00, fyrir þau sem það kjósa. Þau þurfa þá ekki að sækja fræðslu nema í nokkur skipti yfir veturinn en mæta reglulega í guðsþjónustur og messur yfir veturinn. Vetrarfræðslan fyrir þau sem það kjósa hefst fyrstu vikuna í september og verður vikulega. Tímasetning nánar tilkynnt síðar.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra voru boðin sérstaklega til fundar eftir messu sunnudaginn 30. maí og þar var rætt um starfið framundan. Hver og einn getur komið með ósk um fermingardag og annan til vara.
Nánari upplýsingar um skráningu og annað viðvíkjandi fræðsluna er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is
Sigurður Arnarson, 31/5 2010 kl. 19.07