Kópavogskirkja

 

Guðsþjónusta

Íslenskt kirkjukaffi í Sænsku kirkjunni í Lundúnum

Íslenskt kirkjukaffi í Sænsku kirkjunni í Lundúnum

Næstkomandi sunnudag þann 16. maí verður guðsþjónusta klukkan 11:00.  Tríó skipað þeim Eydísi Franzdóttur, Ármanni Helgasyni og Hallfríði Ólafsdóttur leikur áður en guðsþjónustan hefst. Sunnudagaskóli verður í kirkjunni í umsjón Hafdísar Huldar Þrastardóttur.  Björg Þórhalldsóttir syngur einsöng og Hallfríður Ólafsdóttir leikur einleik á þverflautu.  Kór Kópavogskirkju syngur ásamt gömlum félögum úr Íslenska kórnum í Lundúnum og hefst æfing í kirkjunni klukkan 10:00 undir stjórn Lenku Mátéová organista.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.  Þau sem hafa tækifæri eru beðin um að koma með “hádegisverðar vænar” veitingar á hlaðborð sem verður í boði eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt á móti Gerðarsafni).

Sigurður Arnarson, 13/5 2010 kl. 22.40

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS