Kópavogskirkja

 

Myndir frá guðsþjónustu og kirkjukaffi á Uppstingardegi

Gestir fylgjast með söng eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur

Gestir fylgjast með söng eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur

Síðastliðinn fimmtudag 13. maí var guðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Rannveig Löve flutti hugleiðingu en Rannveig fagnar 90 ára afmæli á árinu.  Sigríður Pálsdóttir og Pálína Magnúsdóttir lásu ritningarlestra og sr. Sigurður Arnarson þjónaði fyrir altari.  Félagar úr “Máli dagsins” og eldri félagar úr Karlakór Reykjavíkur leiddu safnaðarsöng.  Organisti var Lenka Mátéová.  Í kirkjukaffinu á eftir sungu eldri félagarnir úr Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks Kristinssonar.

Sigurður Arnarson, 15/5 2010 kl. 8.11

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS