Stefnumótunarvinna
Kársnessöfnuður hefur hafið stefnumótunarvinnu undir forystu Gylfa Dalmanns Aðalsteinssonar, dósents í Mannauðsstjórn við Háskóla Íslands. Hluti sóknarnefndar, nokkrir sjálfboðaliðar í safnaðarstarfinu, sóknarprestur og fulltrúi kórs Kópavogskirkju dvöldu daglangt í Skálholti nýlega við stefnumótunarvinnu ásamt Gylfa. Meðal annars var rætt um styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri í safnaðarstarfinu. Vinnan heldur svo áfram næstu mánuði með þátttöku fleiri aðila sem að safnaðarstarfinu koma.
Sigurður Arnarson, 2/5 2010 kl. 22.40
