Tónleikar í safnaðarheimilinu Borgum miðvikudagskvöldið 12. maí n.k.
Miðvikudagskvöldið 12. maí næstkomandi klukkan 20:00 verða haldnir tónleikar í nýja safnaðarheimilinu Borgum við Hábraut (skáhalt á móti Gerðarsafni). Þetta er í fyrsta sinn sem þar eru haldnir tónleikar með kammertónlist. Þeir sem koma fram eru Kammertríó Kópavogs skipað Peter Máté píanóleikara og flautuleikurunum Guðrúnu Birgisdóttur og Martial Nardeau. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Loeillet, Fauré, Schubert, Dvořák, Doppler og Sigfús Halldórsson. Að þessum tónleikum standa Kópavogskirkja, Kammertríóið og Tónlistarskóli Kópavogs með stuðningi Kópavogsbæjar. Tónleikarnir eru framlag þessara aðila til Kópavogsdaga. Aðgangseyrir er frjáls og eftir tónleikana verður boðið uppá kaffibolla.
Sigurður Arnarson, 5/5 2010 kl. 11.08