Kópavogskirkja

 

Mannabreytingar

Ásta Ágústsdóttir hefur hafið störf sem ritari Kópavogskirkju og er hún boðin velkomin til starfa.  Viðvera ritara er virka daga frá klukkan 09:00-13:00 á skrifstofutímum safnaðarins.  Sigurrós Svavarsdóttir sem gengt hefur starfi kirkjuvarðar og umsjónarmanneskju safnaðarsala hefur látið af störfum og eru henni færðar þakkir fyrir sín störf í þágu Kópavogskirkju.  Nýr kirkjuvörður hefur störf fljótlega og ný umsjónarmanneskja salanna hefur störf síðla sumars.  Guðrún Tómasdóttir hefur tekið að sér umsjón salanna í júní og júlí og er hún einnig boðin velkomin til starfa.  Tekið er á móti bókunum og fyrirspurnum um salina  alla virka daga á milli 09:00-13:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Sigurður Arnarson, 20/6 2010 kl. 10.13

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS