Kópavogskirkja

 

Starf hjá Nýrri dögun í sumar

Í sumar verður sú nýbreytni á starfi Nýrrar dögunar samtaka um sorg og sorgarviðbrögð  að boðið verður upp á svokallað opið hús einu sinni í mánuði þar sem fólk getur komið saman, spjallað, miðlað sinni reynslu, eða hlustað  og fengið sér kaffi.  Venjulega er byrjað með stuttu innleggi en svo er samveran í höndum þeirra sem koma en þó er enginn tilknúinn til að tjá sig. Samtalið er bundið trúnaði.

Margir syrgjendur hafa haft orð á því að finna fyrir litlum stuðningi á sumrin. Þeir sem veita stuðning eru þá gjarnan í sumarfríi og félagsstarf fyrir syrgjendur liggur niðri. Hins vegar fer sorgin ekki í sumarfrí.Stjórn Nýrrar dögunar vill því reyna að bæta hér úr og hefur ákveðið að bjóða upp á dagskrá sem hér segir:

Opið hús verður í safnaðarheimili Háteigskirkju.

- Fimmtudaginn 8.júli kl. 20:00

- Fimmtudaginn 12.ágúst kl. 20:00

- Fimmtudaginn 9.september kl: 20:00

Sigurður Arnarson, 5/7 2010 kl. 19.02

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS