Kópavogskirkja

 

Fermingarfræðslunámskeið í næstu viku

Fermingarnámskeið verður dagana 16-19. ágúst n.k. í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt á móti Gerðarsafni) frá því klukkan 10:00-16:00.  Námskeiðið er fyrir þau sem það kjósa, þau þurfa þá ekki að sækja fræðslu nema í nokkur skipti yfir veturinn en mæta reglulega í guðsþjónustur og messur.

Þau eru beðin um að koma með nesti fyrir hádegismat og kaffi sem og koma í fatnaði sem hentar útiveru.

Miðað er við að unglingar mæti í allar fræðslustundir og ef forföll verða, vinsamlega tilkynnið þau við fyrsta tækifæri.

Eins er miðað við að foreldrar og forráðamenn taki virkan þátt í fræðslu og kirkjusókn unglinganna.  Í fræðsluna skulu unglingarnir taka með sér skriffæri og A4 vinnubók, kennslubókina “Líf með Jesú” og “Kirkjulykilinn” en bækurnar fást í Kirkjuhúsinu á Laugavegi 31 og í fleiri bókabúðum.  Fermingarfræðslugjald er 9300 krónur og skal greiða í lok námskeiðisins.

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangiðkopavogskirkja@kirkjan.is

Sigurður Arnarson, 10/8 2010 kl. 18.29

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS