Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 5. september
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 5. september. Sunnudagaskólinn hefst, umsjón með honum í vetur hafa Sólveig Aradóttir, Þóra Marteinsdóttir og sr. Sigurður Arnarson. Áhersla er lögð á fræðandi, uppbyggilegar og skemmtilegar samverur. Áslaug Hálfdánardóttir og Matthías Baldursson munu leiða söng og tónlist í guðsþjónustunni ásamt Þóru og Sólveigu. Allir eru hvattir til að koma. Boðið verður upp á léttar veitingar í lok stundarinnar.
Ásta Ágústsdóttir, 1/9 2010 kl. 10.16