Fermingarfræðsla
Fyrsti tími í vetrarnámskeiði fermingarfræðslunnar hefst mánudaginn 6. september. Tímarnir verða klukkan 15:10 til 16:00. Námskeiðið verður einu sinni í viku í september, október, nóvember og fram í miðjan desember. Þá verður gert hlé þar til um miðjan janúar að þráðurinn verður tekinn upp aftur fram að fermingum.
Bækurnar sem notaðar eru í fermingarfræðslunni eru “Líf með Jesú” og Kirkjulykillinn, en þær fást í flestum bókabúðum.
Við viljum nota tækifærið og hvetja fermingarbörn og fjölskyldur þeirra að taka þátt í helgihaldi kirkjunnar í vetur sem er alla jafna á sunnudögum kl. 11:00.
Ásta Ágústsdóttir, 6/9 2010 kl. 9.52