Kópavogskirkja

 

Helgihald í dymbilviku og um páska

Skírdagur 21. apríl klukkan 21:00.  Atburðir skírdagskvölds rifjaðir upp.  Lenka Mátéová leikur á orgel og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur.  Altari kirkjunnar afskrýtt í lok stundarinnar.  Prestur: Sr. Sigurður Arnarson.

Föstudagurinn langi, 22. apríl klukkan 14:00.  Guðsþjónusta.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.  Sungin er meðal annars föstutónlist.  Meðleikari á píanó er Jane Sutarjo.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.

Föstudagurinn langi 22. apríl klukkan 15:00-19:30.  Passíusálmar sr. Hallgríms Péturssonar lesnir af prestum sem tengjast Kópavogi með ýmsum hætti, til dæmis búa þar, aldir upp eða starfa þar.  Hægt er að koma og fara að vild á meðan lestrinum stendur.  Að loknum lestrinum er kirkjan myrkruð og íhugun þagnarinnar tekur við.

Páskadagur 24. apríl klukkan 08:00.  Hátíðarguðsþjónusta.  Sungnir hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.  Að guðsþjónustu lokinni er kirkjugestum boðið í heitt súkkulaði og með því í safnaðarheimilinu Borgum.  Klukkan 09:45 er páskaeggjaleit í nágrenni safnaðarheimilisins fyrir börnin.  Þeirri stund lýkur með stuttri bæn.

Sigurður Arnarson, 13/4 2011 kl. 9.40

     

    Hábraut 1a, Kópavogur. Sími Skrifstofa: 554 1898. Kirkja:5541898 · Kerfi RSS