Helgihald um áramót
31. desember kl. 17:30. Gamlársdagur. Tónleikar “Vocal Project”.
Kórinn var stofnaður í desember árið 2010 af Matthíasi Baldurssyni, sem jafnframt er stjórnandi kórsins. Áhersla er lögð á flutning vandaðrar rytmískar tónlistar það er popp, jazz og dægurlaga. Nú syngja hátt í 100 manns með kórnum.
31. desember kl. 18:00 Gamlársdagur. Hátíðarguðsþjónusta. “Vocal Project” syngur undir stjórn Matthíasar Baldurssonar. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altri. Organisti er Lenka Mátéová.
1. janúar 2012, kl. 14:00. Nýjársdagur. Hátíðarguðsþjónusta. Rósa Björk Þorbjarnardóttir, prédikar. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Sigurður Arnarson, 19/12 2011 kl. 22.50