Næsta messa
Sunnudaginn 29. janúar n.k, kl. 11:00 verður “Tónlistarmessa”. Kór Kópavogskirkju flytur tónlist undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Fermingarbörn, foreldrar og forráðamenn sérstaklega boðuð. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni. Fundur á eftir í safnaðarheimilnu Borgum um fermingarstarfið og þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með “hádegisverðar vænar” veitingar á hlaðborð.
Sigurður Arnarson, 22/1 2012 kl. 20.03