Fermingar
Fermingar vorið 2012 í Kópavogskirkju verða: sunnudaginn 25. mars, Pálmasunnudag 1. apríl og Skírdag 5. apríl og hefjast allar kl. 11:00.
FERMINGARFRÆÐSLA FRAM Á VOR
Fermingarfræðslutímar fyrir allan hópin (þau sem eru í vetrarfræðslunni og eins þau sem sóttu sumarfræðslunámskeiðið) verða:
30. janúar,
27. febrúar,
12. mars og
19. mars.
Þau sem eru í 8K mæta klukkan 14:50 í safnaðarheimilið Borgir og þau sem eru 8J skulu mæta í safnaðarheimilið Borgir kl. 15:40 og stendur hver kennslustund í 40 mínútur.
Við biðjum ykkur einnig að tilkynna forföll með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is og viðkomandi munu þá sækja aukatíma síðar eftir samkomulagi.
Allir skulu mæta með „Bókina um Jesú“, vinnubók og Nýja testamenntið
Sunnudaginn 29. janúar n.k. kl.11:00 er svo Tónlistarmessa í Kópavogskirkju. Fermingarbörn, foreldrar og forráðamenn eru þá sérstaklega boðuð. Á eftir er fundur í safnaðarheimilinu Borgum þar sem farið verður yfir fermingarfræðsluna og fermingarnar framundan. Þau sem tækifæri hafa til eru beðin um að koma með “hádegisverðarvænar” veitingar á hlaðborð. (”Borgir” verða opnar frá kl.10:30 ef fólk vill koma veitingunum þangað fyrir messu).