Helgihald
Guðsþjónustur
Guðsþjónustur eru alla sunnudaga kl. 11:00.
Barnastarf
Barnastarf Kópavogskirkju fer fram í safnaðarheimilinu á sunnudögum kl. 11:00. Umsjón með barnastarfið hafa: Inga, Sigríður og Sólveig
Fjölskylduguðsþjónustur
Fjölskylduguðsþjónustur eru fyrsta sunnudag í mánuði frá október til og með maí. Í þeim syngur barnakór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.
Bæna- og kyrrðarstundir
Á þriðjudögum kl. 12:10 er bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni. Þar er lögð áhersla á fyrirbæn og kyrrð og viðeigandi orgeltónlist leikin. Fyrir-bænaefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar á opnunartímum kirkjunnar.