Helgihaldsáætlun
Helgihald í Kópavogskirkju frá janúar til maí 2012
12. febrúar, kl. 11:00. Guðsþjónusta á mörgum tungumálum. Bænir og ritningarlestrar fluttir á mismunandi tungumálum af sóknarbörnum og velunnurum safnaðarins. Samvera í safnaðarheimilinu Borgum á eftir, þar sem nokkur lönd og menning þeirra kynnt á fjölbreyttan hátt. Sunnudagaskóli.
19. febrúar, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli
26. febrúar, kl. 11:00. Tónlistarmessa. Sunnudagaskóli.
4. mars, kl. 11:00. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Fermingarbörn og Sunnudagaskólinn taka þátt í guðsþjónustunni.
11. mars, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Sunnudagaskóli.
18. mars, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli
25. mars, kl. 11:00. Ferming. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
1. apríl, kl. 11:00. Ferming. Pálmasunnudagur. Lokadagur Sunnudagaskólans á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Boðið upp á grillaðar pylsur og með því að Sunnudagaskóla loknum.
5. apríl, kl. 11:00. Ferming. Skírdagur.
5. apríl, kl. 21:00. Skírdagskvöld. Kór Kópavogskirkju syngur á 50 ára vígsluafmælisári Kópavogskirkju “Stabat Mater” eftir G. B. Pergolesi. Kantor: Lenka Mátóvá. “Getsemannestund” í lokin þar sem altari kirkjunnar er afskrítt í minningu atburðanna á skírdagskvöld.
6. apríl, kl. 14:00. Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta.
6. apríl, kl. 15:15. Föstudagurinn langi. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir.
8. apríl, kl. 08:00. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir. Súkkulaði og með því í safnaðarheimilinu “Borgum “ að hátíðarguðsþjónustu lokinni.”
15. apríl, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
22. apríl, kl. 11:00. Guðsþjónusta.
29. apríl, kl. 11:00. Tónlistarguðsþjónusta.
6. maí, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Aðalsafnaðarfundur Kársnessóknar í safnaðarheimilinu Borgum á eftir.
13. maí, kl. 11. Bókmenntaguðsþjónusta.
17. maí, kl. 14:00. Uppstingningardagur. Hátíðarguðsþjónusta. “Félagar úr Máli dagsins” leiða safnaðarsöng. Kaffi og með því í safnaðarheimilinu Borgum á eftir.
20. maí, kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.