Safnaðarheimilið

Safnaðarheimili Kársnessóknar, Hábraut 1A
Söfnuðurinn hefur nýlega tekið í notkun nýtt safnaðarheimili, sem stendur skammt frá kirkjunni við Hábraut 1a. Í safnaðarheimilinu er lítil kapella, skrifstofur fyrir prest, organista, djákna og kirkjuvörð. Þá er í húsinu glæsilegur salur, sem rúmar 140 manns til borðs. Þennan sal er hægt að fá leigðan undir veislur, fundi og önnur mannamót.
Bókanir
Bókanir eru í síma 554 1898 á virkum dögum frá klukkan 09:00-13:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið asta.agustsdottir@kirkjan.is
Ásta Ágústsdóttir sér um útleigu á veislusalnum. Leigutaki ræður jafnhliða umsjónarmanneskju til þess að hafa umsjón með veislunni. Umsjónarmanneskja er um leið tengiliður við söfnuðinn.
Reglur um notkun safnaðarsalarins
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Hófleg meðferð léttra vína og bjórs.
- Veislum þarf að vera lokið um miðnætti.
- Greiða þarf fyrir hreinsun á dúkum,ef þeir eru notaðir 500 pr. dúk.
- Greiða þarf sérstaklega fyrir laun umsjónarmanneskju.
- Notkun á skjávarpa kostar 5.000.
- Ef tjón verður á munum þarf leigutaki greiða það tjón.
- Gengið skal frá greiðslu á sal við staðfestingu á leigu.
Reglur um notkun kapellunnar
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Neysla áfengis er bönnuð.
- Ef tjón verður á munum, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
- Notkun á skjávarpa kostar 5.000.
- Gæta skal góðrar umgengi í hvívetna.
- Gengið skal frá greiðslum við staðfestingu á leigu kapellunnar.
- Ekki er innifalið vinna við uppstillingu og frágang.