Kópavogskirkja

 

“Að missa barn”

-         Fræðsla á vegum Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð

Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur flytur erindi um barnsmissi á samveru Nýrrar dögunar fimmtudagskvöldið 10. mars kl. 20.30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Fyrirspurnir, umræður, kaffi.  Á undan eða kl. 19.30 er opið hús á sama stað þar sem fólk getur komið, spjallað og fengið sér kaffi. Allir velkomnir. Á samverunni verður einnig kynnt hópstarf fyrir þau sem misst hafa barn.  Sr. Vigfús Bjarni starfar sem sjúkrahúsprestur á barnaspítala Hringsins. Hann er með M.th. próf í sálgæslu frá Luther Seminary í St. Paul í Bandaríkjunum og hefur víðtæka reynslu af því að starfa með foreldrum sem misst hafa barn.  Ný dögun eru félagasamtök sem hafa það að markmiði að styðja við syrgjendur og fræða um sorg og sorgarviðbrögð. Samtökin voru stofnuð árið 1987.  Nánari upplýsingar veitir Halldór Reynisson  formaður Nýrrar dögunar, s. 856-1571,  netfang halldor.reynisson@kirkjan.is  og Vigfús Bjarni Albertsson vigfusba@landspitali.is Sjá

Sigurður Arnarson, 7/3 2011

Opið hús og stefnumótun

Kópavogskirkja: Horft til framtíðar

 Stefnumótun í Kársnessókn

 

Opið hús sunnudaginn 13. mars kl. 11:00 til 13:00

 

Horft er til framtíðar í Kársnessókn og leitað svara við þeirri spurningu hvert söfnuðurinn eigi að stefna á komandi árum. Yfirskrift þessarar vinnu er: Kópavogskirkja: Horft til framtíðar: Stefnumótun í Kársnessókn en í desember 2012 er  50 ára vígsluafmæli kirkjunnar og það sama ár 60 ára afmæli Kársnessafnaðar. Af því tilefni viljum við að jafnt starfsemin sem ytri umgjörðin verði eins og best verður á kosið. Við horfum þó vitaskuld líka nær okkur í tíma og raunar hefur nokkrum af þeim hugmyndum sem fram hafa komið í ferlinu þegar verið hrundið í framkvæmd.

Sunnudaginn 13. mars frá kl. 11:00 til 13:00 verður opið hús í Kópavogskirkju og safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni) þar sem drög að þessari framtíðarsýn verða kynnt. Dagskráin hefst í kirkjunni með bókmenntaguðsþjónustu þar sem sr. Sigurður Arnarson, þjónar, Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová, kantors kirkjunnar og Pálína Jónsdóttir, mun fjalla í stað prédikunar um þýska rithöfuninn Max Frish og verk hans.  Flutt verður tónlist sem tengist umfjöllunarefninu og sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni og fer svo í safnaðarheimlið eftir ritningarlestrana. Umsjón með sunnudagaskólanum að þessu sinni hafa Sólveig Aradóttir og Þóra Marteinsdóttir. Að því loknu verður gestum boðið í safnaðarheimilið Borgir þar sem hugmyndavinnan verður kynnt með ýmsum hætti og fólki gefinn kostur á að deila með okkur skoðunum sínum á því hvernig það vill sjá safnaðarstarfið þróast í kirkjunni.

Hugmyndir fermingarbarna að framtíðarstefnu kirkjunnar verða sýndar gamlar og fágætar ljósmyndir úr kirkjustarfinu sem og ýmisr helgigripir og helgiklæði kirkjunnar.

Boðið verður upp á kaffi og kleinur.

 

Kl 11:00 Bókmenntauðsþjónusta með fjölbreyttu sniði.

 

kl. 12:00-13:00 Kynning á stefnumótun

Æskulýðsstarf og kærleiksþjónusta

Helgihald og menningarstarf

Samskipti og tengsl

 

kl. 13:00 Dagskrá lokið

Sigurður Arnarson, 7/3 2011

Boðskort

Kópavogskirkja: Horft til framtíðar

Stefnumótun í Kársnessókn

 

Boðskort

 

Okkur væri heiður og ánægja að njóta þátttöku ykkar í tilefni:

 

Opins húss í Kópavogskirkju

sunnudaginn 13. mars frá kl. 11:00 til 13:00

 

 

Sigurður Arnarson, 7/3 2011

Samvera með foreldrum fermingarbarna

Mánudagskvöldið 7. mars n.k. frá kl.20:00-21:30 verður samvera með foreldrum fermingarbarna vetrarins í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni).  Sigurður Arnarson, sóknarprestur mun ræða fermingarstarfið í vetur og kristna trú.  Halla Halldórssdóttir, sem nýlokið hefur námi í lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík mun ræða um jákvæðni og trú.

Sigurður Arnarson, 6/3 2011

Gunnar Eyjólfsson, leikari kemur í heimsókn í “Mál dagsins”.

Gunnar Eyjólfsson, leikari mun fjalla um ævisögu sína sem kom út um síðustu jól þriðjudaginn 8. mars n.k. í “Máli dagsins”.  Að venju hefst stundin klukkan 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Matéová.  Síðan mun Gunnar segja frá bókinni.  Síðan er kaffi og með því og stundinni lýkur með helgistund klukkan 16:00.  Allir velkomnir.

Sigurður Arnarson, 4/3 2011

Æskulýðsdagurinn

Sunnudaginn 6. mars næstkomandi klukkan 11:00 verður fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju í tilefni Æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar.  Margrét Ármannsdóttir mun ræða um kristna trú.  Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Matthías Baldursson leikur á saxafón.  Sunnudagaskólinn verður í kirkjunni og umsjón með honum að þessu sinni hafa Þóra Marteinsdóttir og sr. Sigurður Arnarson.

Sigurður Arnarson, 1/3 2011

Mál dagsins

Sólrún Halldórsdóttir, listamaður mun flytja erindi um verk sín og myndlistina á Máli dagsins”þriðjudaginn 1. mars.  Mál dagsins hefst klukkan 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Matéová. Síðan heldur Sólrún erindi sitt og stundinni lýkur klukkan 16:00 með helgistund.

Sigurður Arnarson, 28/2 2011

Messa á mörgum móðurmálum á Biblíudeginum

Biblíur á Biblíudeginum í Kópavogskirkju

Í Kársnessöfnuði eins og annars staðar hefur tala þeirra sem eiga annað móðurmál en íslensku aukist síðustu ár.  Í einum leiksskólanum í Kársnesinu eru til dæmis 30 prósent nemenda sem eiga annað móðurmál en íslensku.  Sr. Toshiki Toma, prestur nýbúa prédikaði í gær á Biblíudeginum í Kópavogskirkju og ræddi meðal annars um móðurmál heimsins og velti fyrir sér hvert móðurmál Guðs væri.

Nokkrir íbúar úr Kársnesinu sem taka þátt í safnaðarstarfinu og kórfélagar úr Kór Kópavogskirkju lásu og báðu á sínum móðurmálum.  Á messublaði sem kirkjugestir fengu afhennt var birt íslensk þýðing textanna.

Ritningarlestrar voru fluttir á spænsku og serbnesku og guðspjallið lesið á japönsku.  Beðið var á tékknesku, mandarín, serbnesku, frönsku, ensku og þýsku.  Í kirkjunni var búið að koma fyrir borðum með biblíum á ýmsum tungumálum.  Kór Kópavogsskirkju flutti tónlist víða að úr heiminum undir stjórn Lenku Matéová, kantors kirkjunnar.

Kirkjugestir tóku þessari nýjung í safnaðarstarfinu af þakklæti og gleði.

Nánar

Myndir frá messunni

Móðurmál Guðs, prédikun Toshiki Toma

Sigurður Arnarson, 28/2 2011

Messa á mörgum tungumálum

27. febrúar.  Messa klukkan 11:00.  Sr. Toshiki Toma, prestur nýbúa prédikar og Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari.  Íbúar í Kársnessókn og félagar úr Kór Kópavogskirkju munu lesa ritningartexta á spænsku og serbnesku sem og biðja bæna á ensku, þýsku, mandarín, tékknesku, rússnesku og fleiri tungumálum.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová, kantors.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni á sama tíma og eftir ritningarlestrana fara börnin í safnaðarheimilið “Borgir”.  Umsjón með skólanum hafa þær Sólveig Aradóttir og Þóra Marteinsdóttir.

Sigurður Arnarson, 21/2 2011

Guðsþjónusta á Konudegi 20. febrúar

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju 20. febrúar n.k.klukkan 11:00.  Fluttir verða sálmar eftir konur í tilefni Konundagsins, meðal annars sálmurinn “Verndarvængur” með lagi eftir Báru Grímsdóttur við texta eftir Gerði Kristnýju.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová, kantors.  Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og prédikar.  Hrefna Sigurgeirsdóttir les ritningarlestra og sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni. Umsjón með honum hafa Sólveig Aradóttir og Þóra Marteinsdóttir.  Eftir guðsþjónustuna munu karlar úr kór Kópavogskirkju baka vöflur í safnaðarheimilinu Borgum og eru auðvitað allir velkomnir þangað.

Sigurður Arnarson, 19/2 2011

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Mánudagur

Skrifstofan opin frá 09:00-13:00
Starf fyrir börn í 1. - 3. bekk grunnskóla fer fram í sfnaðarheimilinu Borgum milli klukkan 15.30 og 16.30. Ef þess er óskað þá eru börnin sótt í dægradvölina í Kársnesskóla og skilað þangað aftur. Nauðsynlegt er að óska sérstaklega eftir því bæði til kirkjunnar og eins í dægradvölinni.
Sorgarhópur
Kóræfingar hjá "Vocal Project" á milli 19:45-20:00 í safnaðarheimilnu Borgum.

Dagskrá ...