Stundin hefst klukkan 21:00. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur einstöng. Lenka Mátéová leikur á orgel og sr. Sigurður prédikar og þjónar fyrir altari. Í lok stundarinnar verður altari kirkjunnar afskrýtt.
Sigurður Arnarson, 19/4 2011
Klukkan Sálmur nr. Lesari
15:00-15:20. 1-4. Sr. Sigurður Arnarson
15:20-15:40. 5-8. Sr. Guðni Már Harðarson
15:40-16:00. 9-12. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
16:00-16:20. 13-16. Sr. Gunnar Sigurjónsson
16:20-16:40. 17-20. Sr. Yrsa Þórðardóttir
16:40-17:00. 21-24. Sr. Magnús Björn Björnsson
17:00-17:20. 25-28. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
17:20-17:40. 29-32. Sr.Hans Guðberg Alfreðsson
17:40-18:00. 33-36. Sr. Íris Kristjánsdóttir
18:00-18:20. 37-40. Sr. Sigfús Kristjánsson
18:20-18:45. 41-45. Sr. Hjörtur Pálsson
18:45-19:10. 46-50, Sr. Kristján Valur Ingólfsson
Sigurður Arnarson, 19/4 2011
Föstudaginn langa 22. apríl klukkan 15:00-19:30 verða Passíusálmar sr. Hallgríms Péturssonar lesnir af prestum sem tengjast Kópavogi með ýmsum hætti, til dæmis búa, aldir upp eða starfa þar. Hægt er að koma og fara að vild á meðan lestrinum stendur. Að loknum lestrinum er kirkjan myrkruð og íhugun þagnarinnar tekur við.
Sigurður Arnarson, 13/4 2011
Skírdagur 21. apríl klukkan 21:00. Atburðir skírdagskvölds rifjaðir upp. Lenka Mátéová leikur á orgel og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur. Altari kirkjunnar afskrýtt í lok stundarinnar. Prestur: Sr. Sigurður Arnarson.
Föstudagurinn langi, 22. apríl klukkan 14:00. Guðsþjónusta. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Sungin er meðal annars föstutónlist. Meðleikari á píanó er Jane Sutarjo. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Föstudagurinn langi 22. apríl klukkan 15:00-19:30. Passíusálmar sr. Hallgríms Péturssonar lesnir af prestum sem tengjast Kópavogi með ýmsum hætti, til dæmis búa þar, aldir upp eða starfa þar. Hægt er að koma og fara að vild á meðan lestrinum stendur. Að loknum lestrinum er kirkjan myrkruð og íhugun þagnarinnar tekur við.
Páskadagur 24. apríl klukkan 08:00. Hátíðarguðsþjónusta. Sungnir hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Að guðsþjónustu lokinni er kirkjugestum boðið í heitt súkkulaði og með því í safnaðarheimilinu Borgum. Klukkan 09:45 er páskaeggjaleit í nágrenni safnaðarheimilisins fyrir börnin. Þeirri stund lýkur með stuttri bæn.
Sigurður Arnarson, 13/4 2011
Næsta mál dagsins verður þriðjudaginn 26. apríl klukkan 14:30-16:00.
Sigurður Arnarson, 13/4 2011
Börnin og sorgin,
Fyrirlestur hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð
Dr. Sigurður Pálsson, f.v. sóknarprestur, kennari og námsstjóri flytur fyrirlestur hjá Nýrri dögun um glímu barna við sorgina. Fyrirlesturinn er fimmtudagskvöldið 14. apríl kl. 20.30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Fyrirspurnir, umræður, kaffi.
Á undan eða kl. 19.30 er opið hús á sama staðþar sem fólk getur komið, spjallað og fengið sér kaffi. Allir velkomnir.
Dr. Sigurður er, ásamt eiginkonu sinni Jóhönnu G. Möller, höfundur bókarinnar Börn og sorg, sem þau hjón hafa kynnt fyrir sorgarhópum víða um land. Þá hefur Sigurður haldið fjölda fyrirlestra um efnið fyrir leik- og grunnskólakennara og kennaranema.
Ný dögun
www.sorg.is
nánari upplýsingar veitir Halldór Reynisson formaður Nýrrar dögunar, s. 856-1571, halldor.reynisson@kirkjan.is
Ásta Ágústsdóttir, 12/4 2011
Guðsþjónusta sunnudaginn 17. apríl kl.11:00 í Kópavogskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová, kantors. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni kl. 11:00 en heldur síðan áfram í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir. Vetrarstarfi skólans lýkur.
Sigurður Arnarson, 10/4 2011
Mál dagsins hefst að venju n.k. þriðjudag 12. apríl kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Matéová. Klukkan 15:10 mun Örn Arnarson, tónlistarmaður flytja erindi um sr. Matthías Jochumsson og sálma hans. Stundinni lýkur með helgistund klukkan 16:00.
Sigurður Arnarson, 10/4 2011
Mál dagsins 5. apríl n.k. hefst klukkan 14:30 í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni). Stundin hefst að venju á samsöng undir stjórn Friðrkis Kristinssonar og Lenku Matéová. Klukkan 15:10-15:30 mun Ágúst Valfells, kjarneðlisfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík útskýra fyrir hvað kjarnorka er og fjalla um starfssemi kjarnorkuvera. Kaffi og með því er boðið upp á kl.15:10 og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.
Sigurður Arnarson, 31/3 2011
Fermt verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 3. apríl klukkan 11:00. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová, kantors. Athugið að þessu sinni hefst sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni) á sama tíma.
Sigurður Arnarson, 31/3 2011