Kópavogskirkja

 

Hátíðarguðsþjónusta á Páskamorgni.

Hátíðarguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju klukkan 08:00 á Páskamorgni.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.  Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Morgunnmatur í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt á móti Gerðarsafni) á eftir og á sama tíma verður helgistund fyrir börnin í kapellunni.  Á eftir henni er páskaeggjaleit fyrir börnin í nágrenni safnaðarheimilisins.

Sigurður Arnarson, 3/4 2010

Föstudagurinn langi.

Guðsþjónusta á Föstudaginn langa klukkan 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Einleik á píanó annast Peter Maté.  Einsöng syngur Margrét Helga Guðmundsdóttir.

Sigurður Arnarson, 1/4 2010

Skírdagur

Tréútskurðarverk í Borgum. Ljósmynd, Aldís Pálsdóttir

Tréútskurðarverk í Borgum. Ljósmynd, Aldís Pálsdóttir

1. apríl, Skírdagur. Klukkan 11:00. Ferming. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hirti Hjartarsyni. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Sigurður Arnarson, 31/3 2010

Lag um krakka í Kópavogskirkju

Lagið er sérstaklega samið af Hafdísi Huld Þrastardóttur fyrir námskeiðið Krakkar í Kópavogskirkju.  Það verður frumflutt af krökkunum á námskeiðinu í Kópavogskirkju miðvikudaginn 31. mars klukkan 18:00 þar sem verður uppskeruhátíð.

Við stiklum yfir steina

á leiðinni upp í Borgir.

Þar má alltaf spjalla

Um bæði gleði og sorgir.

Hér lærum við um trúna

og kynnumst betur Guði.

Skemmtum okkur saman

í rosalegu stuði.

Við erum krakkar í Kópavogi

í kirkjunni okkar er gaman.

Við leikum bæði og biðjum

Og svo syngja allir saman.

Svo hugsum við til þeirra

sem eru kannski veikir.

Því lífið er nú ekki

alltaf bara leikir

Hjálpum þeim sem þurfa

og erum góð við alla.

Í kirkunni okkar alltaf

eitthvað skemmtilegt að bralla.

Ljósmynd, Aldís Pálsdóttir

Ljósmynd, Aldís Pálsdóttir

Sigurður Arnarson, 31/3 2010

Krakkar í Kópavogskirkju

Um 30 börn á aldrinum 6 og 7 ára sækja nú námskeið sem stendur frá mánudeginum 29. mars til miðvikudagsins 30. mars frá kl. 9-12.  Umsjón með námskeiðinu hafa þær Hafdís Huld Þrastardóttir, tónlistarmaður, Alistair, tónlistarmaður, Inga Harðardóttir, guðfræðinemi ásamt sóknarpresti og aðilum úr sóknarnefnd.  Börnin hafa meðal annars æft lag eftir Hafdísi Huld, farið í ýmsa leiki úti og inni.  Mikil gleði og fjör hefur verið.

Hópurinn leggur af stað í "þrautarorm" undir stjórn Hafdísar Huldar.

Þrautarormur. Ljósmynd, Aldís Pálsdóttir

Sigurður Arnarson, 31/3 2010

Fyrirbænastund á þriðjudögum kl. 12:10

Fyrirbænastund er á hverjum þriðjudegi klukkan 12:10 í Kópavogskirkju.  Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt á móti Gerðarsafni) í boði á eftir gegn vægu verði.  Tekið er við fyrirbænarefnum á netfanginu kopavogskirkja@kirkjan.is

Sigurður Arnarson, 29/3 2010

Fyrirhugaðar guðsþjónustur og messur vor og fyrri hluta sumars 2010

28. mars. Pálmasunnudagur. Ferming klukkan 11:00. Prestar: Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hirti Hjartarsyni.

1. apríl, Skírdagur. Klukkan 11:00. Ferming. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hirti Hjartarsyni. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

2.apríl, Föstudagurinn Langi, kl. 11:00. Guðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

4. apríl, Páskadagur, kl. 08:00. Hátíðarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.. Hátíðarkaffi í safnaðarheimilinu Borgum á eftir hátíðarguðsþjónustunni. Klukkan 09:00 er sunnudagskóli  í safnaðarheimilnu Borgum. Páskaeggjaleit fyrir börnin á eftir.

11. apríl, kl. 11:00. Ferming. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hirti Hjartarsyni.Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagskóli í Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.

18. apríl, kl.11:00. Bókmenntaguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og Gísli Örn Garðarson, leikari og leikstjóri fjallar um “Faust”. Nína Dögg Filippusdóttur, leikkona les valda kafla úr verkinu. Leikin verður tónlist tengd verkinu. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagskóli í Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.  Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjónustu í safnaðarheimilinu Borgum.

25. apríl, kl. 10:00. “Upprisan. Nýr veruleiki”. Fræðsluerindi dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar í safnaðarheimilinu Borgum.

11:00. Tónlistarmessa. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagskóli í Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.

2. maí, kl. 11:00. Uppskeruhátíð barnastarfs kirkjunar. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Umsjón með barnastarfinu hafa Inga Harðardóttir og Sigríður Stefánsdóttir.

9. maí, kl.11:00. Guðsþjónusta. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

13. maí, kl.14:00, Uppstigningardagur. Hátíðarguðsþjónusta. Dagur eldri borgara. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Hópur eldri borgara leiðir safnaðarsöng undir stjórn Lenku Mátéová. Hátíðarkaffi í safnaðarheimilinu Borgum eftir guðsþjónustu.

16. maí kl.11:00. Lundúnarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur ásamt íslendingum, sem búið hafa í Lundúnum. Stjórnandi og organisti Lenka Mátéová. Björg Þórhallsdóttir syngur einsöng. Lundúnarkirkjukaffi (meðal annars “Rósubrauðtertur”)í Borgum að lokinni guðsþjónustu.

23. maí kl. 11:00, Hvítasunnudagur. Hátíðarguðsþjónusta og ferming. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

30. maí kl. 11:00. Tónlistarmessa. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

6. júní kl.11:00. Sjómannadagurinn. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

13. júní kl.11:00. Guðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Sigurður Arnarson, 25/3 2010

Krakkar í Kópavogskirkju

Í dymbilviku verður í Kópavogskirkju leikjanámskeið fyrir 6 -7 ára börn.

Námskeiðið verður haldið í Borgum, safnaðarheimili kirkjunnar (skáhalt á móti Gerðarsafni) mánudag til miðvikudags frá klukkan 9-12 fyrir 6 og 7 ára börn (börn fædd árið 2002 og 2003, tveir aldursskiptir hópar)

Umsjón með námskeiðinu hafa þær Hafdís Huld Þrastardóttir, tónlistarmaður og Inga Harðardóttir, guðfræðinemi ásamt fleirum.

Þátttökugjald er 1000 krónur fyrir hvert barn en eru þau beðin um að koma með eigið nesti.

Skráningu á námskeiðið er lokið.

Hver dagur hefst á helgistund en síðan fer helmingur hópsins í könnunnar- og efnisöflunarferð í nágrenni kirkjunar og hinn helmingurinn vinnur listaverk tengd atburðum dymbilvikunar og upprisu Jesú.

Eftir nestistíma skipta hóparnir um stað.

Miðvikudaginn 31. mars verður svo uppskeruhátíð námskeiðsins og hefst hún klukkan 18:00 með helgistund í kirkjunni en síðan er haldið í Borgir og afrakstur vikunnar sýndur ættingjum og vinum.

Með kærri kveðju Kópavogskirkja

Sigurður Arnarson, 19/3 2010

Námskeið fyrir leikskólakennara og starfsfólk á leikskólum í Kópavogi

Í safnaðarheimili Kársnessóknar (gegnt Gerðarsafni), þriðjudaginn 23. mars kl. 17:30.

Kl. 17:30 Barnið í brennidepli.  Gunnar Finnbogason, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands mun fjalla um Barnasáttmálann í leikskólastarfi, einkum varðandi þátttöku, virðingu og vernd barna.

Kl. 18:30 Matarhlé

Kl. 19:00 Fjölbreytni mannlífs.  Halla Jónsdóttir aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands mun fjalla um samskipti við foreldra og samstarfsfólk.  Námskeiðið er í boði kirknanna í Kópavogi og Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og er því starfsfólki leikskólanna að kostnaðarlausu. Skráning fer fram í síma 587 1500 eða á netfangið profaust@centrum.is.

Sigurður Arnarson, 17/3 2010

Æfingadagskrá fyrir vorfermingar 2010.

Hópurinn sem fermist á Pálmasunnudegi 28. mars klukkan 11:00 mun æfa, laugardaginn 20. mars klukkan 13:00-13:45 og laugardaginn 27. mars klukkan 11:00-11:45.

Hópurinn sem fermist á Skírdegi 1. apríl mun æfa mánudaginn 29. mars klukkan 11:00-11:45 og þriðjudaginn 30. mars klukkan 11:00-11:45.

Hópurinn sem fermist sunnudaginn 11. apríl mun æfa þriðjudaginn 6, aprílklukkan 16:00-17:15 og laugardaginn 10. apríl frá klukkan 10:30-11:15.

Sigurður Arnarson, 17/3 2010

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Föstudagur

Skrifstofan opin frá klukkan 09:00-13:00

Dagskrá ...