Kópavogskirkja

 

Mál dagsins

Mál dagsins verður á morgunn, þriðjudaginn 16. febrúar í safnaðarheimilinu Borgum (gegnt Gerðarsafni) og hefst klukkan 14:30-16:00.  Stundin hefst á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar við undirleik Lenku Mátéová.  Tekið verður fyrir “mál dagsins” og að því loknu er helgistund rétt fyrir klukkan 16:00.

Sigurður Arnarson, 15/2 2010

Næsta guðsþjónusta.

Sunnudaginn 14. febrúar verður guðsþjónusta í Kópavogskirkju klukkan 11:00.  Sr. Sigurjóns Árna Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Lenka Mátéová, organisti stjórnar kór Kópavogskirkju.  Sunnudagskólinn í Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.

Sigurður Arnarson, 13/2 2010

Foreldramorgnar

Fleiri og fleiri sækja nú foreldramorgna í Kópavogskirkju sem eru á fimmtudögum frá klukkan 10:00-12:00:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Fimmtudaginn 18. febrúar næstkomandi mun sjúkraþjálfarinn Alma Guðjónsdóttir tala um mikilvægi hreyfingar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Sigurður Arnarson, 13/2 2010

Messuþjónar og messuhópar

Eftir guðsþjónustu þann 21. febrúar n.k. verður í Safnaðarheimilinu Borgum kynningarfundur um starf messuþjóna og messuhópa.

Hlutverk messuþjóna er að taka þátt í helgihaldinu, meðal annars með því að taka á móti kirkjugestum og dreifa sálmabókum og messuskrám, lesa ritningarlestra, taka þátt í bænahaldi og aðstoða við altarisgöngu. Hver hópur hittist nokkrum dögum fyrir hverja guðsþjónustu með presti og skiptir meðal annars með sér verkum og ræðir prédikunartexta næstkomandi sunnudags.  Þau sem áhuga hafa á að taka þátt í starfi messuhópa eru beðin um að hafa samband við sr. Sigurður Arnason (sigurdur.arnarson@kirkjan.is).

Sigurður Arnarson, 8/2 2010

Góð þátttaka í “Máli dagsins”

Æ fleiri sækja stundirnar sem eru á þriðjudögum frá klukkan 14:30-16:00 í Safnaðarheimlinu Borgum. Tónlistarfólkið Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová stjórna söng með skörungsskap. Á síðasta fundi  flutti Stefán Runólfsson, fróðlegt og gott erindi um kælingu hraunsins í Vestmannaeyjagosinu árið 1973.  Því næst var boðið upp á veitingar og stundinni lauk með helgistund í umsjón sr. Sigurðar Arnarsonar. Næstkomandi þriðjudag 9. febrúar mun Valgerður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæmis flytja erindi.  Auðvitað eru allir velkomnir.

Sigurður Arnarson, 4/2 2010

Barna og fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 7. febrúar

Tónlistarkonan Hafíds Huld flytur nokkur laga sinna. Prestur sr. Sigurður Arnarson. Organisti Lenka Mátéová. Börn í 7-9 ára og 10-12 ára starfinu taka þátt í helgihaldinu undir stjórn Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Sigurður Arnarson, 4/2 2010

Fjölskyldumorgnar

Börnin hafa þar nóg fyrir stafni við leik blunda úti í vagni á meðan.

Borgir eru staðsettar fyrir neðan Kópavogskirkju, skáhald á móti Salnum og Gerðusafni og eru morgnarnir  á fimmtudögum frá kl. 10 – 12. Annar hver fimmtudagur er almennt opið hús en fimmtudagana á móti eru ýmsir gestir fengnir í heimsókn.

N.k. fimmtudag, 4. febrúar, mun t.d. Harpa Káradóttir förðunarfræðingur koma og fræða konur um listina að farða sig og hálfum mán- uði síðar, 18. feb. mun Alma Guðjónsdóttir, sjúkraþjálfari ræðir um grindargliðnun og hreyfingu fyrir nýbakaðar mæður.

Við hvetjum foreldra að líta við og fá sér kaffi og meðlæti um leið og börunum gefst tæki- færi til að sprikla aðeins á gólfinu.

Sigurður Arnarson, 2/2 2010

Fermingarfræðsla og mátun á fermingarkyrtlum.

Fermingarfræðsla verður laugardaginn 6. febrúar n.k. í safnaðarheimlinu Borgum.  Fræðslan er klukkan 10:30, 11:15 og 12:00.  Foreldrum fermingarbarnanna er boðið að taka þátt í fræðslunni með sínum unglingum.  Eftir hvern tíma verður mátun á fermingarkyrtlum í kirkjunni.

Sigurður Arnarson, 2/2 2010

Næsta guðsþjónusta 7. febrúar n.k.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 7. febrúar n.k. klukkan 11:00.

Sigurður Arnarson, 2/2 2010

Næsta messa 31. janúar n.k.

Tónlistarmessa klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Einsöngur: Eyjólfur Eyjólfsson, sem fljótlega tekur við stöðu söngvara við Hollenska Útvarpskórinn. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu Borgum. Fundur með foreldrum fermingarbarna og fermingarbörnum í safnaðarheimilinu Borgum á eftir messunni.

Sigurður Arnarson, 28/1 2010

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Fimmtudagur

Skrifstofan opin á milli 09:00 til 13:00.
Fjölskyldumorgnar eru á hverjum fimmtudegi milli klukkan 10:00 og 12:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir.
Helgistundir í Sunnuhlíð klukkan 16:00

Starf fyrir börn í 4. - 5. bekk grunnskóla fer fram í safnaðarheimilinu Borgum milli klukkan 15.00 - 16.00.

Dagskrá ...