4. desember n.k. kl.11:00. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sunnudagaskólinn í kirkjunni í umsjón Þóru Marteinsdóttur og Sigurðar Arnarsonar. Jólaball á eftir í safnaðarheimilinu “Borgum”. Gengið í kringum jólatré og heyrst hefur að jólasveinn muni heiðra ballið með nærveru sinni og gefa góðgæti í poka. Allir velkomnir.
Sigurður Arnarson, 27/11 2011
27. nóvember, kl. 11:00. Ásta Ágústsdóttir sett inn í embætti djákna við Kópavogskirkju af sr. Gísla Jónassyni, prófasti Reykjavíkurprófastsdæmis Eystra. Ásta prédikar og sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová. Á eftir messu er móttaka í safnaðarheimilinu “Borgum” til heiðurs Ástu. Allir hvattir til að koma og samfagna nýjum djákna.
27. nóvember, kl.11:00. Í stað sunnudagaskólans verður leikritið “Jólarósir Snuðru og Tuðru” sýnt í safnaðarheimilinu Borgum. Leiksýningin tekur 45 í sýningu og aðgangseyrir er enginn. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
27. nóvember, kl.13:00. Opnun sýningar á íkonum eftir serbneska listamanninn Danilo Ivanovic. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátóvá. Allir velkomnir.
Sigurður Arnarson, 23/11 2011
Það verður nóg um að vera fyrsta sunnudag í aðventu í Þjóðkirkjusöfnuðum Kópavogs þann 27. nóvember n.k. Aðventuhátíð fjölskyldunnar verður í Hjallakirkju kl. 13 og síðan verða aðventukvöld í Digraneskirkju og Lindakirkju.
Í Digraneskirkju verður aðventuhátíð kl. 20 með kór Digraneskirkju. Um er að ræða tónleika með einsöng og fjölbreyttum tónlistaratriðum. Hugleiðingu flytur sr. Magnús Björn Björnsson. Að hátíð lokinni verður kaffisala í safnaðarsal kirkjunnar til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Veitingarnar eru í boði Digranessafnaðar og Reynisbakarí.r
Í Lindakirkju verða aðventutónleikar kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Fjöldi einsöngvara kemur fram. Sérstakur gestur tónleikanna er Gréta Salóme Stefánsdóttir, fiðluleikari. Flutt verður hugleiðing og lesnir ritningarlestrar. Lesarar eru Bernharður Guðmundsson og Hanna Sóley Helgadóttir. Ókeypis er inn á tónleikana en tekin verða samskot til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.
Sigurður Arnarson, 23/11 2011
Fimmtudaginn 19. janúar hefst í Breiðholtskirkju Biblíulestraröð á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Starfs- og leikmannaskóla kirkjunnar. Á
námskeiðinu verður gerð grein fyrir stefnum og straumum í íslenskri guðfræði
á síðustu öld. Samhliða umfjölluninni verður fjallað um
Jóhannesarguðguðspjall, tilurð, efni og byggingu þess en nokkrir kaflar
verða ritskýrðir sérstaklega.
Umsjón og kennari: Dr.dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Tími: 19. janúar—23. mars, kl. 20.00-22.00, fimmtudagar 10 skipti.
Staðsetning: Breiðholtskirkja
Ásta Ágústsdóttir, 16/11 2011
Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugvekju í tilefni Kristniboðsdagsins. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sunnudagaskóli verður í kirkjunni og hefur Þóra Marteinsdóttir umsjón með honum.
Ásta Ágústsdóttir, 11/11 2011
Fermingarbörn í Kársnesprestakalli ásamt fleiri fermingarbörnum á Íslandi ganga daganna 7-15. nóvember n.k. í heimahús og safna fé fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Sjá nánar á meðfylgjandi slóðum: http://www.youtube.com/user/Hjalparstarf og :http://vimeo.com/hjalparstarf
Sjá einnig á heimasíðu Hjálparstarfsins www.help.is.
Sigurður Arnarson, 7/11 2011
Sunnudaginn 6. nóvember kl. 14:00 verður “Húnvetningaguðsþjónusta” í Kópavogskirkju.
Sigurður Arnarson, 5/11 2011
Sunnudaginn 6. nóvember n.k. kl.11:00 verður guðsþjónusta í Kópavogskirkju. Beðið verður fyrir með nafni og tendrað kertaljós fyrir hvert þeirra, sem sóknarprestur Kársnessprestakalls hefur jarðsungið frá 1. nóvember 2010 til loka október á þessu ári. Áður en guðsþjónustan hefst gefst kirkjugestum tækifæri frá 10:30-10:55 að tenda kertaljós við altari og á meðan verður leikin tónlist. Vilborg Helgadóttir mun syngja einsöng og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.
Á eftir guðsþjónustunni verður boðið upp á “hádegisverðarvænar” veitingar í safnaðarheimilinu “Borgum”. Þau sem hafa tækifæri til að koma með veitingar í hádegisverðin eru beðin um að gera það og hægt er að koma veitingunum í safnaðarheimilið fyrir guðsþjónustuna. Ásta Ágústsdóttir, djákni Kópavogskirkju mun svo flytja stutt erindi um “Sorg og sorgarviðbrögð” vegna andláta.
Sunnudagaskólinn mun hefjast að venju í kirkjunni en fljótlega fara börnin svo í safnaðarheimilið og skólinn heldur áfram þar.
Sigurður Arnarson, 5/11 2011
Meðal þess sem fermingarbörnin fá að kynnast í vetur er þróunar- og hjálparstarf á vegum kirkjunnar í landinu og þar á meðal Kópavogskirkju. Við njótum samstarfs við starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefur útbúið efnið sem við notum, myndir og upplýsingar um líf munaðarlausra barna í Úganda í Afríku. Fermingarbörnin fá að kynnast erfiðleikum sem þau glíma við. Rædd er ábyrgð okkar á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi. Síðan ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Mörg hafa reynslu af því að ganga í hús úr íþrótta- og félagsstarfi. Fyrir söfnunina fá þau leiðbeiningar frá okkur um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Þau fara alltaf tvö og tvö saman. Foreldrum og eða forráðamönnum er velkomið að ganga með þeim og við þiggjum gjarnan aðstoð við að koma þeim af stað með baukana og taka á móti þeim aftur hér í safnaðarheimilinu. Söfnunardagar fermingarbarna í Kársnessókn er 7 og 8. nóvember kl. 18:30 – 20:00 (þau ráða hvort kvöldið þau safna) og er mæting í Safnaðarheimilinu ”Borgum” (skáhalt gengt Gerðarsafni).
Við teljum að með þessari fræðslu getum við frætt fermingarbörnin um boðskap Krists á áþreifanlegan hátt. Hér skapast mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum. Á unglingsárum þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif. Um leið metum við meira þá gæfu sem við njótum hér á Íslandi.
Verkefni þetta var fyrst unnið fyrir þrettán árum og gafst mjög vel. Fermingarbörn meira en 60 sóknum um land allt taka þátt nú.
Sigurður Arnarson, 5/11 2011
Tilfinningar, líðan og samfylgd með unglingum
Fræðslufundur fyrir foreldra fermingarbarna í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Kópavogi verður haldinn í Kópavogskirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20-21.15. Á fundinum verður rætt um líðan unglinga, tilfinningar og hvaða áhrif áföll geta haft á bæði okkur og unglingana okkar. Einnig verður fjallað um samfylgd foreldra og unglinga. Fyrirlesarar verða sr. Vigfús Bjarni Albertsson og sr. Sigfús Kristjánsson. Vigfús er sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, hann starfar bæði á barnaspítala hringsins og barna- og unglingageðdeild auk þess að vera kennari í sálgæslufræðum við Endurmenntun Háskólans. Sigfús er prestur við Hjallakirkju og er einn höfunda fyrirlesturs um sorg og sorgarviðbrögð sem farið hefur í flesta framhaldsskóla landsins. Sú fræðsla hefur verið hluti af lífsleiknifræðslu í MK undanfarin 8 ár.
Sigurður Arnarson, 5/11 2011