Sunnudaginn 7. mars verður guðsþjónusta í Kópavogskirkju klukkan 11:00 með þáttöku þeirra sem hafa verið í fermingarfræðslu í vetur og í barnastarfi kirkjunnar í tilefni af Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar.Fermingarbörn vetrarins og foreldar þeirrra eru sérstaklega hvött til að mæta. Skólakór Kársnes mun syngja undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.
Sigurður Arnarson, 4/3 2010
Í fyrramálið mun Ingibjörg Leifsdóttir, hjúkrunarfræðingur halda erindi á foreldramorgni í safnaðarheimilinu um svefnvenjur ungbarna. Stundin hefst klukkan 10:00 og lýkur kl. 12:00. Boðið er upp á niðurskorna ávexti og gott samfélag.
Sigurður Arnarson, 3/3 2010
Þeim fer fjölgandi þátttakendunum í “máli dagsins” á þriðjudögum frá klukkan 14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Um 40 manns sóttu stundina í dag sem hófst að venju á söng í umsjón Friðriks Kristinssonar sem meðal annars er stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur og Drengjakórs Reykjavíkur. Organistinn okkar Lenka Mátéová var ekki í dag þar sem hún hélt í morgunn í vikuferð til Tékklands. Nanna Briem geðlæknir kom og flutti fróðlegt erindi um siðblindu. Að því loknu var boðið upp á kaffi og með því í umsjón Sigurrósar Svavarsdóttur, kirkjuvarðar. Stundinni lauk svo með helgistund. Þriðjudaginn 9. mars mun Hallgerður Ólafsdóttir flytja erindi um “Maximus Músíkmús”.
Sigurður Arnarson, 2/3 2010
Yfir 50 unglingar úr Kársnesinu komu í dag heim úr velheppnuðu fermingarferðalagi í Vatnaskóg. Tekið var glæsilega og vel á móti hópnum í Vatnaskógi. Boðið var upp meðal annars upp á fjölbreytta fræðslu og mikinn frjálsan tíma sem unglingarnir nýttu sér óspart í blíðu og fallegu veðri. Hópurinn stóð sig mjög vel og var óspart hrósað af presti og starfsmönnum námskeiðisins.
Sigurður Arnarson, 2/3 2010
Prestar í Kópavogi hafa tekið í gagnið vaktsíma sem notaður er á bakvöktum innan allra fjögurra safnaða Kópavogs. Um er að ræða síma sem fer á milli 8 prestanna í bænum, viku og viku í senn, og sinnir útköllum í bænum utan hefðbundins vinnutíma, skrifstofutíma, þ.e. á kvöldin, nætur og um helgar. Þetta þýðir að þegar kalla þarf út prest í útkall í Kópavogi þá er hringt í þetta númer. Ef nauðsyn þykir að hafa samband við viðkomandi sóknarprest/presta þá mun sá prestur sem er á vaktinni meta það og láta þá vita. Skipulagið er þannig að gert er ráð fyrir einum á bakvakt (handhafa símans) og svo tveimur til vara ef þörf þykir. Síminn verður tekinn í notkun núna um helgina. Ætlunin er að sjá og reyna hvernig til tekst á næstu mánuðum. Nýi vaktsíminn í Kópavogi er þessi: 843-0444.
Sigurður Arnarson, 26/2 2010
Næstkomandi sunnudag 28. febrúar klukkan 11:00 mun Kór Kópavogskirkju undir stjórn Lenku Mátéová syngja í messu mismunandi útsetningar við föstusálma Hallgríms Péturssonar. Sr. Sigurður Arnarson mun prédika og þjóna fyrir altari. Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu Borgum á sama tíma í umsjón Ingu Harðardóttur, Sigríðar Stefánsdóttur og Sólveigar Aradóttur.
Sigurður Arnarson, 24/2 2010
Á morgunn fimmtudaginn 25. febrúar verður opið hús á foreldramorgni í safnaðarheimilinu Borgum frá klukkan 10:00-12:00.
Sigurður Arnarson, 24/2 2010
Í gær flutti Einar Benediktsson, fyrrverandi sendiherra fróðlegt erindi á “Máli dagsins” um utanríkismál í safnaðarheimilinu Borgum. Fjallaði Einar meðal annars um starfsemi íslensku utanríksþjónustunar í byrjun og bar saman við starfið í dag. Stundin hófst að venju með söng undir stjórn þeirra Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová og lauk með helgistund.
Sigurður Arnarson, 24/2 2010
Farið verður í fermingarferðalag í Vatnaskóg klukkan 08:00 frá safnaðarheimlinu (skáhalt á móti Gerðarsafni) þann 1. mars og áætluð heimkoma er um kaffileytið þann 2. mars. Þau sem ekki hafa tilkynnt þáttöku í ferðina en ætla með. eru beðin um að gera það hið fyrsta með því að senda tölvupóst til kopavogskirkja@kirkjan.is Tekið verður við þátttökugjaldinu 5000 krónur við rútuna þann 1. mars.
Fermingarfræðsla er laugardaginn 6. mars á hefðbundnum tímum.
Aukatímar verða mánudaginn 8. mars frá klukkan 15:00-17:00 og fimmtudaginn 11. mars frá klukkan 15:00-16:30. Verða þau sem þangað eiga að mæta boðuð sérstaklega.
Æfingar fyrir fermingar verða sem segir og undirstrikað er mikilvægi þess að allir mæti á æfingar með þeim hóp sem þau fermast með:
Hópurinn sem fermist á Pálmasunnudegi 28. mars klukkan 11:00 mun æfa, laugardaginn 20. mars klukkan 13:00-13:45 og laugardaginn 27. mars klukkan 11:00-11:45.
Hópurinn sem fermist á Skírdegi 1. apríl mun æfa mánudaginn 29. mars klukkan 11:00-11:45 og þriðjudaginn 30. mars klukkan 11:00-11:45.
Hópurinn sem fermist sunnudaginn 11. apríl mun æfa þriðjudaginn 6, apríl klukkan 16:00-17:15 og laugardaginn 10. apríl frá klukkan 10:30-11:15.
Æft verður í Kópavogskirkju og foreldrar og eða forráðamenn beðnir að vera með sínum unglingum á fyrri æfingu hvers hóps. Ef forföll verða vinsamlega tilkynnið þau á kopavogskirkja@kirkjan.is
Sigurður Arnarson, 24/2 2010
Næstkomandi þriðjudag 23. febrúar n.k. mun Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands segja frá landsliðinu í handbolta og starfi þess í “Máli dagsins” en dagskráin hefst klukkan 14:30 með söng undir stjórn Friðriks Karlssonar við undirleik Lenku Mátéová. Einar ræðir svo um landsliðið og stundinni lýkur klukkan 16:00 með stuttri helgistund.
Sigurður Arnarson, 21/2 2010