Kópavogskirkja

 

Foreldramorgnar á fimmtudögum.

Fjölskyldumorgnar hefja aftur göngu sína 21. janúar næstkomandi.  Hvern fimmtudag kl. 10-12. Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir. Boðið upp létta hessingu i á hverri samveru. Annan hvern fjölskyldumorgun fáum við heimsókn frá aðilum með fræðslu eða kynningu á ýmsum efnum er tengjast börnum og barnauppeldi. Þarna gefst gott tækifæri til kynnast öðrum og eiga góðar stundir í vinalegu umhverfi.

Sigurður Arnarson, 17/1 2010

Alfa námskeið fyrir unglinga


Þriðjudaginn 19. janúar hefst Alfa fyrir mennaskólanemendur í Kópavogi. Það er þó alls enginn skylda að búa í Kópavogi, að sjálfsögðu eru allir velkomnir!

Fjallað er á einfaldan og þægilegan hátt um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Hver stund hefst á léttum málsverði. Síðan er kennsla í um 45 mínútur og eftir stutt hlé eru umræður í litlum hópum.

Á námskeiðinum er tekist á við hinnar stóru spurningar um lífið og tilveruna og þeim svarað, eins og hægt er, á skýran og skilmerkilegan hátt.  Alfa námskeið hentar öllum, hvort sem þeir eru trúaðir eða ekki, koma oft í kirkju eða aldrei.  Námskeiðið er einnig skemmtilegt samfélag þar sem gaman er að hittast, borða saman og spjalla.  Á miðju kennslutímabilinu munum við fara í ferðalag í Ölver, þar sem verður bæði kennt og skemmt sér.

Námskeiðið er í haldið á vegum Hjallakirkju, Digraneskirkju, Lindakirkju og Kópavogskirkju.  Kennt verður í Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju. Námskeiðið er  9 skipti, á þriðjudögum frá 17:00-19:00.

Námskeiðið er fyrir nemendur í framhaldsskóla.
Þátttökugjald er 2000 kr.

Áhugsamir geta haft samband við Þráinn Haraldsson, æskulýðsfulltrúa Hjallakirkju í s. 554-6716 eða senda tölvuóst á thrainn(hjá)hjallakirkja.is.

Ekki er þörf á að skrá sig en þriðjudaginn 19. janúar er kynningstund á námskeiðinu og allir eru velkomnir þangað.

Sigurður Arnarson, 17/1 2010

Fermingarfræðslan.

Annan hvern laugardagsmorgunn er fermingarfræðsla í safnaðarheimilinu Borgum. Næsti fræðslutími verður laugardaginn 23.janúar næstkomandi.  Stuðst er í kennslunni við bækurnar “Líf með Jesú” og “Kirkjulykilinn”. Foreldrar og forráðamenn eru hvött til að sækja reglulega helgihaldið með unglingunum sínum og taka þannig virkan þátt í fermingarundirbúningnum.  Laugardaginn 6. febrúar er foreldrum og forráðamönnum boðið að koma í fermingarfræðsluna og taka þátt í henni ásamt unglingunum.  Stefnt er á fermingarferðarlag í byrjun marsmánaðar.

Sunnudaginn 31. janúar er unglingunum og fjölskyldum þeirra boðið sérstaklega til messu klukkan 11:00. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Máteóvá organista safnaðarins. Eyjólfur Eyjólfsson syngur einsöng en Eyjólfur heldur til Hollands í byrjun febrúar en hann hefur verið fastráðinn við Hollenska útvarpskórinn.

Á eftir messunni er fundur í safnaðarheimlinu Borgum (nýja safnaðarheimlinu) með unglingunum sem fermast, foreldrum þeirra og forráðamönnum.  Þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með góðgæti í hádegisverðarhlaðborð eftir fundinn.

Sigurður Arnarson, 17/1 2010

Mál dagsins

Næstkomandi þriðjudag 19. janúar mun sr. Bernharður Guðmundsson koma í heimsókn og ræða um; “Að eldast á nýrri öld”. Söngur hefst klukkan 14:30 sem stjórnað er af Friðrik Kristinssyni og undirleik annast Lenka Mátéová.  Sr. Bernharður mun svo hefja erindi sitt klukkan 15:00. Allir hjartanlega velkomnir.

Sigurður Arnarson, 13/1 2010

Mál dagsins

Næstkomandi þriðjudag 12. janúar klukkan 14:30 hefst stundin “Mál dagsins” sem er sambland af tali og tónum í safnaðarheimili Kópavogskirkju “Borgum”.  Í upphafi mun Friðrik Kristinsson stjórna söng en undirleik annast Lenka Mátéová.  Að því loknu ræðir Páll Valsson, rithöfundur um bók sína “Vigdís Finnbogadóttir” sem kom út fyrir síðustu jól.  Stundinni lýkur klukkan 16:00 og allir eru hjartanlega velkomnir.

Sigurður Arnarson, 10/1 2010

Fyrirhugaðar guðsþjónustur og messur í janúar til mars 2010

31. janúar. Tónlistarmessa klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson.  Einsöngur: Eyjólfur Eyjólfsson. Fundur með foreldrum fermingarbarna og fermingarbörnum í safnaðarheimilinu Borgum á eftir messunni.

7. febrúar. Barna og fjölskylduguðsþjónusta klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson.  Skólakór Kársnesskóla syngur. Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir.

14. febrúar. Guðsþjónusta klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson

21. febrúar. Guðsþjónusta klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson

28. febrúar. Tónlistarmessa klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson.

7. mars. Æskulýðsdagurinn. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta klukkan 11:00. Skólakór Kárssnes syngur. Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir. Prestur sr. Sigurður Arnarson.

14. mars. Guðsþjónusta klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurður Arnarson.

21. mars. Guðsþjónusta klukkan 11:00. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.

28. mars. Pálmasunnudagur. Ferming klukkan 11:00. Prestur Sr. Sigurður Arnarson.

Sigurður Arnarson, 5/1 2010

Helgihald í Kópavogskirkju á aðventu og jólum

31. desember. Gamlársdagur. Aftansöngur klukkan 18:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju, stjórnandi Lenka Mátéová. Einsöngur: Ólafur Kjartan Sigurðarson.

1. janúar. Nýjársnótt. Tónlistar og bænarstund í kirkjunni frá klukkan 00:30.

1. janúar. Nýjársdagur. Hátíðarguðsþjónusta klukkan 14:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju, stjórnandi Lenka Mátéóvá.

Sigurður Arnarson, 8/12 2009

9. desember. Aðventutónleikar með kaffihúsayfirbragði.

20.00 Aðventutónleikar í safnaðarheimili Kópavogskirkju við Hábraut.

Kór Kópavogskirkju syngur íslensk og erlend jólalög undir stjórn Lenku Mátéovu.  Einsöng syngja:  Árni Gunnarsson, Elísabet Einarsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Margrét Helga Kristjánsdóttir, Sigmundur Jónsson og Þórunn Elín Pétursdóttir.  Undirleikur á píanó: Peter Máté.

Í boði verður heitt súkkulaði og piparkökur.  Aðgangseyrir 1000 krónur.

Sigurður Arnarson, 5/12 2009

Aðventukvöld 6. desember 2. sunnudag í aðventu.

Kl. 20:00

Fjölbreytt tónlist og Gunnhildur Óskarsdóttir, kennari og formaður stjórnar “Göngum saman” flytur hátíðarræðu.

Sigurður Arnarson, 5/12 2009

6.desember 2. sunnudagur í aðventu

Kl.11.00 Fjölskylduguðsþjónusta.

Sr. Ægir Frímann Sigurgeirsson þjónar fyrir altari.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar.  Skólakór Kársnesskóla syngur. Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir.  Organisti: Lenka Mátéová.  Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni. Stjórnendur: Inga Harðardóttir og Sigríður Stefánsdóttir.

Sigurður Arnarson, 5/12 2009

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Fimmtudagur

Skrifstofan opin á milli 09:00 til 13:00.
Fjölskyldumorgnar eru á hverjum fimmtudegi milli klukkan 10:00 og 12:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir.
Helgistundir í Sunnuhlíð klukkan 16:00

Starf fyrir börn í 4. - 5. bekk grunnskóla fer fram í safnaðarheimilinu Borgum milli klukkan 15.00 - 16.00.

Dagskrá ...