Sunnudagskvöldið 30.október síðastliðinn var “óhefðbundin” guðsþjónusta í Kópavogskirkju. Hljómsveitin SOS eða Stúlkan og strákarnir og Kór Kópavogskirkju fluttu nokkur lög hljómsveitarinnar U2 og í lokin var flutt lagið “Hallelúja” eftir Leonard Cohen. Þrjú laga U2 voru flutt í íslenskri þýðingu sr. Gunnars Sigurjónssonar og Sr. Sigurður Arnarson flutti hugleiðingu. Um 250 manns sóttu guðsþjónustuna og var gerður góður rómur að.
Sigurður Arnarson, 31/10 2011
Mál dagsins hefst hvern þriðjudag kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Þriðjudaginn 1. nóvember mun Sigurður Arnarson, segja frá og lesa upp úr bókinni “Hugsjónareldur”. Stundinni lýkur klukkan 16:00 með stuttri helgistund.
Sigurður Arnarson, 31/10 2011
Næstkomandi sunnudag 30. október verður Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sunnudagaskólinn að þessu sinni í kirkjunni allan tíma. Sr. Sigurður Arnarson, flytur hugleiðingu og umsjón hafa Inga Harðardóttir og Sólveig Aradóttir.
Sigurður Arnarson, 28/10 2011
Hljómsveitin SOS eða Stúlkan og strákarnir flytja tónlist hljómsveitarinnar U2 ásamt Kór Kópavogskirkju þann 30. okt nk. Kl. 20.00.
Stjórnandi Kórs Kópavogskirkju er Lenka Mátéová, kantor Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og flytur hugleiðingu. Guðsþjónustan verður með óhefðbundnu sniði.
Hljómsveitina SOS skipa þau: Helgi Már Hannesson á píanó, Ólafur Steinarsson á bassa, John Hansen á gítar, Guðlaugur Þorleifsson á trommur, Kristín Stefánsdóttir er söngkona hljómsveitarinnar. Arnar Dór Hannesson verður gestasöngvari með hljómsveitinni þetta kvöld.
Þess má til gamans geta að flestir meðlimir þessa tónlistarviðburðar eru Kópavogsbúar eða tengdir Kópavogi á einn eða annan hátt.
Sigurður Arnarson, 22/10 2011
Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir nemendur við Söngskólann í Reykjavík syngja. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni og heldur í safnaðarheimilið Borgir að loknum ritningarlestri. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir.
Ásta Ágústsdóttir, 20/10 2011
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni, en heldur eftir ritningarlestra í safnaðarheimilið Borgir þar sem fram verður haldið. Umsjónarmenn sunnudagaskólans eru Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir.
Ásta Ágústsdóttir, 13/10 2011
Athugið að námskeiðið fellur niður í kvöld 6.október, vegna veikinda.
Ásta Ágústsdóttir, 6/10 2011
Guðsþjónusta verður 9. október í Kópavogskirkju kl.11:00. Kór Kópavogskirkju syngur. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.
Sigurður Arnarson, 5/10 2011
Starf fyrir börn í 4-5 bekk er á fimmtudögum frá kl. 15:00-16:00 í safnaðarheimilnu Borgum. Starfið annast Sólveíg Aradóttir og Jón Helgi Hólmgeirsson.
Sigurður Arnarson, 3/10 2011
Næsta mál dagsins verður þriðjudaginn 4. október kl.14:30-16:00. Stundin hefst að venju með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová, kantors og Friðriks Kristinssonar, stjórnanda Karlakórs Reykjavíkur. Að samsöng loknum mun Guðrún Gunnarsdóttir, þáttagerðarstjórnandi “Samfélagsins í nærmynd” segja frá störfum sínum. Stundinni lýkur með stuttri helgistund.
Sigurður Arnarson, 3/10 2011