Kópavogskirkja

 

Mál dagsins

Þriðjudaginn 20. desember kl.14:30-16:00 er mál dagsins í safnaðarheimilinu “Borgum”.  Stundin hefst á samsöng undir stjórn þeirra Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl.15:10 heldur Rannveig Löve, erindi.  Stundinni lýkur með stuttri helgistund rétt fyrir kl.16:00.

Sigurður Arnarson, 19/12 2011

Mozart við kertaljós í Kópavogskirkju

Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin og verða tónleikarnir í Kópavogskirkju, þriðjudagskvöldið 20.desember kl.21.00.  Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í átján ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.
Leikinn verða tvær af perlum Mozarts, óbókvatettinn og flautukvartett í D-dúr. Einnig hljómar á tónleikunum kvintett eftir J.C.Bach fyrir flautu, óbó og strengi.  Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða ” Í dag er glatt í döprum hjörtum”  úr Töfraflautunni eftir Mozart. Hópinn skipa að þessu sinni þau Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir  fiðluleikari, Guðrún Þórarinsdóttir  víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari en gestur á tónleikunum er Daði Kolbeinsson óbóleikari. Tónleikarnir verða sem hér segir: í Hafnarfjarðarkirkju, mánudagskvöldið 19. desember, í Kópavogskirkju,  þriðjudagskvöldið 20.desember,  í Garðakirkju,  miðvikudagskvöldið 21. desember og loks í Dómkirkjunni í Reykjavík,  fimmtudagskvöldið 22. desember. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.  Aðgangseyrir er kr. 2500 og kr. 1500 fyrir nemendur og eldri borgara.. Frítt er inn fyrir börn.  Miðasala við innganginn.

Sigurður Arnarson, 13/12 2011

Helgihald í Kópavogskirkju á aðventu og jólum 201

18. desember, kl. 11:00.  Fjórði sunnudagur í aðventu

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.

24. desember, kl. 15:00. Aðfangadagur

Aðfangadagur. “Beðið eftir jólunum”. Helgistund barnanna með tónlistarívafi.

24. desember, kl. 18:00. Aðfangadagur

Aftansöngur. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Fyrir aftansöng eru fluttir hátíðartónar. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir.

25. desember, kl. 14:00. Jóladagur

Hátíðarguðsþjónusta. Ásta Ágústdóttir, þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Arnarson, prédikar. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir.

25. desember, kl. 15:15. Jóladagur

Hátíðarguðsþjónusta í Sunnuhlíð. Sr. Sigurður Arnarson prédikar. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéóvá.

26. desember kl. 14:00.  Annar jóladagur

Barna- og fjölskyldustund. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari.

31. desember kl. 17:30. Gamlársdagur

Tónleikar, „Vocal Project“.

31. desember kl. 18:00. Gamlársdagur

Hátíðarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. „Vocal Project“ syngur undir stjórn Matthíasar Baldurssonar.

1. janúar kl. 14:00. Nýjársdagur

Hátíðarguðsþjónusta. Rósa Björg Þorbjarnardóttir prédikar og sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir.

Kór Kópavogskirkju syngur í öllum guðsþjónustum og messum nema að annað sé tekið fram. Kantor Kópavogskirkju er Lenka Mátéóvá.

Sigurður Arnarson, 12/12 2011

Guðsþjónusta 18. desember n.k.

Guðsþjónustan hefst kl. 11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni og heldur síðan áfram í safnaðarheimilinu “Borgum”.  Skólinn verður í umsjón Sólveigar Aradóttur og Þóru Marteinsdóttur.

Sigurður Arnarson, 11/12 2011

Næsta guðsþjónusta

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 11. desember n.k. kl.11:00.  Börn úr leiksskólanum Kópasteini flytja helgileik.  Sunnudagaskólinn í kirkjunni í umsjón Þóru Marteinsdóttur og Sigurðar Arnarsonar.  Allir velkomnir.

Sigurður Arnarson, 8/12 2011

Aðventutónleikar

Aðventutónleikar Kórs Kópavogskirkju verða miðvikudagskvöldið 7. desember n.k. í safnaðarheimilinu “Borgum” og hefjast kl.20:00.  Kórinn flytur aðventulög víða að undir stjórn Lenku Mátóvá, kantors.  Inga Harðardóttir, guðfræðingur flytur hugleiðingu.  Engin aðgangseyrir og allir velkomnir.

Sigurður Arnarson, 5/12 2011

“Mál dagsins”

Þriðjudaginn 6. desember n.k. hefst mál dagsins að venju klukkan 14:30.  Stundin hefst á samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Um klukkan 15:05 mun Helgi Seljan halda erindi.  Á eftir því er boðið upp á kaffiveitingar.  Stundinni lýkur kl. 16:00.

Sigurður Arnarson, 5/12 2011

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og jólaball í “Borgum”

4. desember n.k. kl.11:00.  Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.  Sunnudagaskólinn í kirkjunni í umsjón Þóru Marteinsdóttur og Sigurðar Arnarsonar.  Jólaball á eftir í safnaðarheimilinu “Borgum”.  Gengið í kringum jólatré og heyrst hefur að jólasveinn muni heiðra ballið með nærveru sinni og gefa góðgæti í poka.  Allir velkomnir.

Sigurður Arnarson, 27/11 2011

Innsetning djákna, “Jólarósir Snuðru og Tuðru” og opnun íkonasýningar

27. nóvember, kl. 11:00.  Ásta Ágústsdóttir sett inn í embætti djákna við Kópavogskirkju af sr. Gísla Jónassyni, prófasti Reykjavíkurprófastsdæmis Eystra. Ásta prédikar og sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová.  Á eftir messu er móttaka í safnaðarheimilinu “Borgum” til heiðurs Ástu.  Allir hvattir til að koma og samfagna nýjum djákna.

27. nóvember, kl.11:00.  Í stað sunnudagaskólans verður leikritið “Jólarósir Snuðru og Tuðru” sýnt í safnaðarheimilinu Borgum.  Leiksýningin tekur 45 í sýningu og aðgangseyrir er enginn.  Að sjálfsögðu eru allir velkomnir.

27. nóvember, kl.13:00.  Opnun sýningar á íkonum eftir serbneska listamanninn Danilo Ivanovic.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátóvá.  Allir velkomnir.

 

Sigurður Arnarson, 23/11 2011

Fyrsti sunnudagur í aðventu í Hjalla-, Digranes- og Lindakirkju

Það verður nóg um að vera fyrsta sunnudag í aðventu í Þjóðkirkjusöfnuðum Kópavogs þann 27. nóvember n.k. Aðventuhátíð fjölskyldunnar  verður í Hjallakirkju kl. 13 og síðan verða aðventukvöld í Digraneskirkju og Lindakirkju.

Í Digraneskirkju verður aðventuhátíð kl. 20 með kór Digraneskirkju. Um er að ræða tónleika með einsöng og fjölbreyttum tónlistaratriðum. Hugleiðingu flytur sr. Magnús Björn Björnsson. Að hátíð lokinni verður kaffisala í safnaðarsal kirkjunnar til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Veitingarnar eru í boði Digranessafnaðar og Reynisbakarí.r

Í Lindakirkju verða aðventutónleikar kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Fjöldi einsöngvara kemur fram. Sérstakur gestur tónleikanna er Gréta Salóme Stefánsdóttir, fiðluleikari. Flutt verður hugleiðing og lesnir ritningarlestrar. Lesarar eru Bernharður Guðmundsson og Hanna Sóley Helgadóttir. Ókeypis er inn á tónleikana en tekin verða samskot til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sigurður Arnarson, 23/11 2011

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Föstudagur

Skrifstofan opin frá klukkan 09:00-13:00

Dagskrá ...