Kópavogskirkja

 

Biblíulestrar í Breiðholtskirkju vor 2012

Fimmtudaginn 19. janúar hefst í Breiðholtskirkju Biblíulestraröð á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Starfs- og leikmannaskóla kirkjunnar. Á
námskeiðinu verður gerð grein fyrir stefnum og straumum í íslenskri guðfræði
á síðustu öld. Samhliða umfjölluninni verður fjallað um
Jóhannesarguðguðspjall, tilurð, efni og byggingu þess en nokkrir kaflar
verða ritskýrðir sérstaklega.

Umsjón og kennari: Dr.dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur.

Tími: 19. janúar—23. mars, kl. 20.00-22.00,  fimmtudagar  10 skipti.

Staðsetning: Breiðholtskirkja

Ásta Ágústsdóttir, 16/11 2011

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 13. nóvember

Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugvekju í tilefni  Kristniboðsdagsins.  Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.  Sunnudagaskóli verður í kirkjunni og hefur Þóra Marteinsdóttir umsjón með honum.

Ásta Ágústsdóttir, 11/11 2011

Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Fermingarbörn í Kársnesprestakalli ásamt fleiri fermingarbörnum á Íslandi ganga daganna 7-15. nóvember n.k. í heimahús og safna fé fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.  Sjá nánar á meðfylgjandi slóðumhttp://www.youtube.com/user/Hjalparstarf og :http://vimeo.com/hjalparstarf

Sjá einnig á heimasíðu Hjálparstarfsins www.help.is.

Sigurður Arnarson, 7/11 2011

“Húnvetningaguðsþjónusta”

Sunnudaginn 6. nóvember kl. 14:00 verður “Húnvetningaguðsþjónusta” í Kópavogskirkju.

Sigurður Arnarson, 5/11 2011

“Allra heilagra messa”

Sunnudaginn 6. nóvember n.k. kl.11:00 verður guðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Beðið verður fyrir með nafni og tendrað kertaljós fyrir hvert þeirra, sem sóknarprestur Kársnessprestakalls hefur jarðsungið frá 1. nóvember 2010 til loka október á þessu ári.  Áður en guðsþjónustan hefst gefst kirkjugestum tækifæri frá 10:30-10:55 að tenda kertaljós við altari og á meðan verður leikin tónlist.  Vilborg Helgadóttir mun syngja einsöng og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.

Á eftir guðsþjónustunni verður boðið upp á “hádegisverðarvænar” veitingar í safnaðarheimilinu “Borgum”.  Þau sem hafa tækifæri til að koma með veitingar í hádegisverðin eru beðin um að gera það og hægt er að koma veitingunum í safnaðarheimilið fyrir guðsþjónustuna.  Ásta Ágústsdóttir, djákni Kópavogskirkju mun svo flytja stutt erindi um “Sorg og sorgarviðbrögð” vegna andláta.

Sunnudagaskólinn mun hefjast að venju í kirkjunni en fljótlega fara börnin svo í safnaðarheimilið og skólinn heldur áfram þar.

Sigurður Arnarson, 5/11 2011

Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Meðal þess sem fermingarbörnin fá að kynnast í vetur er þróunar- og hjálparstarf á vegum kirkjunnar í landinu og þar á meðal Kópavogskirkju. Við njótum samstarfs við starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefur útbúið efnið sem við notum, myndir og upplýsingar um líf munaðarlausra barna í Úganda í Afríku. Fermingarbörnin fá að kynnast erfiðleikum sem þau glíma við. Rædd er ábyrgð okkar á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi. Síðan ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Mörg hafa reynslu af því að ganga í hús úr íþrótta- og félagsstarfi. Fyrir söfnunina fá þau leiðbeiningar frá okkur um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Þau fara alltaf tvö og tvö saman. Foreldrum og eða forráðamönnum er velkomið að ganga með þeim og við þiggjum gjarnan aðstoð við að koma þeim af stað með baukana og taka á móti þeim aftur hér í safnaðarheimilinu. Söfnunardagar fermingarbarna í Kársnessókn er 7 og 8.  nóvember kl. 18:30 – 20:00 (þau ráða hvort kvöldið þau safna) og er mæting í Safnaðarheimilinu ”Borgum” (skáhalt gengt Gerðarsafni).
Við teljum að með þessari fræðslu getum við frætt fermingarbörnin um boðskap Krists á áþreifanlegan hátt. Hér skapast mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum. Á unglingsárum þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heiminum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif. Um leið metum við meira þá gæfu sem við njótum hér á Íslandi.
Verkefni þetta var fyrst unnið fyrir þrettán árum og gafst mjög vel. Fermingarbörn meira en 60 sóknum um land allt taka þátt nú.

Sigurður Arnarson, 5/11 2011

“Líðan, tilfinningar og áhrif áfalla”

Tilfinningar, líðan og samfylgd með unglingum
Fræðslufundur fyrir foreldra fermingarbarna í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Kópavogi verður haldinn í Kópavogskirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20-21.15. Á fundinum verður rætt um líðan unglinga, tilfinningar og hvaða áhrif áföll geta haft á bæði okkur og unglingana okkar. Einnig verður fjallað um samfylgd foreldra og unglinga.  Fyrirlesarar verða sr. Vigfús Bjarni Albertsson og sr. Sigfús Kristjánsson.  Vigfús er sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, hann starfar bæði á barnaspítala hringsins og barna- og unglingageðdeild auk þess að vera kennari í sálgæslufræðum við Endurmenntun Háskólans.  Sigfús er prestur við Hjallakirkju og er einn höfunda fyrirlesturs um sorg og sorgarviðbrögð sem farið hefur í flesta framhaldsskóla landsins.  Sú fræðsla hefur verið hluti af lífsleiknifræðslu í MK undanfarin 8 ár.

Sigurður Arnarson, 5/11 2011

U2 guðsþjónusta

Sunnudagskvöldið 30.október síðastliðinn var “óhefðbundin” guðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Hljómsveitin SOS eða Stúlkan og strákarnir og Kór Kópavogskirkju fluttu nokkur lög hljómsveitarinnar U2 og í lokin var flutt lagið “Hallelúja” eftir Leonard Cohen.  Þrjú laga U2 voru flutt í  íslenskri þýðingu sr. Gunnars Sigurjónssonar og Sr. Sigurður Arnarson flutti hugleiðingu.  Um 250 manns sóttu guðsþjónustuna og var gerður góður rómur að.

Sigurður Arnarson, 31/10 2011

“Mál dagsins”

Mál dagsins hefst hvern þriðjudag kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Þriðjudaginn 1. nóvember mun Sigurður Arnarson, segja frá og lesa upp úr bókinni “Hugsjónareldur”. Stundinni lýkur klukkan 16:00 með stuttri helgistund.

Sigurður Arnarson, 31/10 2011

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00

Næstkomandi sunnudag 30. október verður Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sunnudagaskólinn að þessu sinni í kirkjunni allan tíma. Sr. Sigurður Arnarson, flytur hugleiðingu og umsjón hafa Inga Harðardóttir og Sólveig Aradóttir.

Sigurður Arnarson, 28/10 2011

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Föstudagur

Skrifstofan opin frá klukkan 09:00-13:00

Dagskrá ...