Kópavogskirkja

 

U2 guðsþjónusta í Kópavogskirkju

Hljómsveitin SOS eða Stúlkan og strákarnir flytja tónlist hljómsveitarinnar U2 ásamt Kór Kópavogskirkju þann 30. okt nk. Kl. 20.00.

Stjórnandi Kórs Kópavogskirkju er Lenka Mátéová, kantor Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari og flytur hugleiðingu. Guðsþjónustan verður með óhefðbundnu sniði.

Hljómsveitina SOS skipa þau: Helgi Már Hannesson á píanó, Ólafur Steinarsson á bassa, John Hansen á gítar, Guðlaugur Þorleifsson á trommur, Kristín Stefánsdóttir er söngkona hljómsveitarinnar. Arnar Dór Hannesson verður gestasöngvari með hljómsveitinni þetta kvöld.

Þess má til gamans geta að flestir meðlimir þessa tónlistarviðburðar eru Kópavogsbúar eða tengdir Kópavogi á einn eða annan hátt.

Sigurður Arnarson, 22/10 2011

Guðsþjónusta 23. október kl. 11.00

Sr. Sigurður Arnarson prédikar og  þjónar fyrir altari.  Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir nemendur við Söngskólann í Reykjavík syngja.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar.  Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni og heldur í safnaðarheimilið Borgir að loknum ritningarlestri.  Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir.

Ásta Ágústsdóttir, 20/10 2011

Guðsþjónusta 16.október klukkan 11.00

Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar.  Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni, en heldur eftir ritningarlestra í safnaðarheimilið Borgir þar sem fram verður haldið.  Umsjónarmenn sunnudagaskólans eru Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir.

Ásta Ágústsdóttir, 13/10 2011

“Verndum þau”

Athugið að námskeiðið fellur niður í kvöld 6.október, vegna veikinda.

Ásta Ágústsdóttir, 6/10 2011

Guðsþjónusta 9. október

Guðsþjónusta verður 9. október í Kópavogskirkju kl.11:00.  Kór Kópavogskirkju syngur.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.

Sigurður Arnarson, 5/10 2011

Starf fyrir 4-5 bekk

Starf fyrir börn í 4-5 bekk er á fimmtudögum frá kl. 15:00-16:00 í safnaðarheimilnu Borgum.  Starfið annast Sólveíg Aradóttir og Jón Helgi Hólmgeirsson. 

Sigurður Arnarson, 3/10 2011

“Mál dagsins”

Næsta mál dagsins verður þriðjudaginn 4. október kl.14:30-16:00.  Stundin hefst að venju með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová, kantors og Friðriks Kristinssonar, stjórnanda Karlakórs Reykjavíkur.  Að samsöng loknum mun Guðrún Gunnarsdóttir, þáttagerðarstjórnandi “Samfélagsins í nærmynd” segja frá störfum sínum.  Stundinni lýkur með stuttri helgistund.

Sigurður Arnarson, 3/10 2011

Ertu í atvinnuleit, viltu fá aðstoð…….þér er boðið á námskeið……..

 

         ,,Hér stend ég“

 

  Námskeið fyrir atvinnuleitendur 18-29 ára

                                     

 

Tækifæri til að byggja sig upp, kynnast  öðrum, finna og nýta hæfileika sína.

Staður:  Safnaðarheimili  Breiðholtskirkju

Dagsetn.:  11.október –  24. nóvember 2011

Tími:  Þriðjudaga og fimmtudaga  kl.10,00 – 13,00

 

Nánari upplýsingar og skráning:  herstendeg@gmail.com

og í síma 893-1929.

Ásta Ágústsdóttir, 30/9 2011

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður klukkan 11.00.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.  Sunnudagaskólinn verður í kirkjunni.

Ásta Ágústsdóttir, 29/9 2011

 

Emmaus-námskeið í Breiðholtskirkju

Nærandi námskeið um lífið og trúna

frá 4. október til 15. nóvember

 

Þriðjudaginn 4. október næstkomandi hefst svokallaða Emmaus-námskeið í Breiðholtskirkju.

Emmaus námskeiðið er fyrir öll þau sem áhuga hafa á kristindómnum og/eða vilja dýpka skilning sinn á kristinni trú. Á námskeiðinu er fjallað um ýmsa grundvallarþætti kristinnar trúar og leitast við að ræða af opnum huga það sem hún boðar. Lögð er áhersla á umræður og vangaveltur þátttakenda og íhugað á hvaða hátt trúin tengist okkar daglega lífi.

Námskeiðið verður á þriðjudagskvöldum frá kl. 18:30 til 20:30. Byrjað er með sameiginlegri hressingu og síðan er fræðsla og umræður. Kvöldinu lýkur með bæn og íhugun.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sr. Bryndís Malla Elídóttir og      sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.

 

Af hverju Emmaus?

Nafnið á námskeiðinu á rætur sínar að rekja til þorpsins Emmaus sem sagt er frá í Lúkasarguðspjalli. Lærisveinar Jesú voru á ferð til Emmaus eftir páskana og ræddu sín á milli það sem gerst hafði. Þeir voru hugsandi eftir nýliðna atburði og höfðu um margt að ræða. Sjálfur Jesús slóst í för með þeim á göngunni en þeir áttuðu sig ekki á því í fyrstu hver hann væri.

Námskeiðið er í 6 skipti á þriðjudagskvöldum frá kl. 18:30 -20.30 og er þátttakendum að kostnaðalausu.

Skráning á námskeiðið fer fram í Breiðholtskirkju í síma 587 1500 eða með því að senda póst á netfangið: breidholtskirkja@kirkjan.is.

 

 

Ásta Ágústsdóttir, 27/9 2011

Fermingarfræðsla
Skráning í fermingarfræðslu

Skráning í Þjóðkirkjuna

Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a er opin virka daga frá 09:00-13:00. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is. Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson (netfang: sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Kirkjuvörður: Guðjón Jónsson sími 898 8480. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er:554 1898. Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is. Kirkjan er opin eftir samkomulagi.

Viðtalstímar
Viðtalstímar sóknarprests sr. Sigurðar Arnarsonar eru eftir samkomulagi á mánu-,þriðju, fimmtu- og föstudögum í safnaðarheimilinu Borgum. Sími: 554 1898. Þjónustan er veitt án endurgjalds. Hægt er að ná í sr. Sigurð í neyðartilvikum í síma 8939682. Viðtalstímar djákna Ástu Ágústsdóttur eru eftir samkomulagi. Sími:5541898. Netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is

Neyðarþjónusta presta
Vaktsími: 843 0444
Prestar Kópavogs hafa tekið upp samstarf um vaktsíma utan venjulegs skrifstofutíma. Vaktsíminn er símanúmer sem hægt er að hringja í vegna aðkallandi málefna sem alls ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.


Skoðaðu vefinn


Leiga á sal safnaðarheimilis

Salinn í safnaðarheimilinu og kapelluna er hægt að fá leigða undir veislur, fundi og önnur mannamót. Upplýsingar um sali safnaðarheimilisins eru veittar á skrifstofutíma í síma 554 1898 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is

Eftirfylgd við fólk í erfiðum aðstæðum
Kópavogskirkja býður þeim sem eru í erfiðum aðstæðum að taka þátt í verkefni sem auðveldar þeim að komast í gegnum sorg vegna missis. Missir getur verið af ýmsu tagi, heilsubrestur, atvinnumissir, ástvinur sem deyr eða aðrir erfiðleikar sem bjáta á. Þessi þjónusta er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu eins og öll sálgæsla kirkjunnar. Allar upplýsingar fást hjá sóknarpresti og djákna kirkjunnar.

Föstudagur

Skrifstofan opin frá klukkan 09:00-13:00

Dagskrá ...