Hátt á fjórða tug barna og foreldra þeirra sóttu sunnudagaskólann í Kópavogskirkju í morgunn. Hafdís og Klemmi komu í heimsókn, mikið sungið og voru börnin glöð með að sunnudagskólinn sé byrjaður aftur eftir sumarfrí. Næsti sunnudagskóli er næsta sunnudag og hefst kl.11:00 í kirkjunni.
Sigurður Arnarson, 11/9 2011
Barna- og æskulýðsstarf Kópavogskirkju
Markmið starfsins er að börn og unglingar fái fræðslu um kristna trú við þeirra hæfi.
Foreldramorgnar. Þeir eru á hverjum fimmtudegi frá klukkan 10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni). Allir foreldrar ungra barna eru velkomnir. Boðið er upp á ávexti í hverri samveru. Reglulega eru heimsóknir frá aðilum með fræðslu og kynningar á ýmsu sem tengist börnum og barnauppeldi. Gott tækifæri gefst að kynnast öðrum með ung börn og eiga góðar stundir saman.
Sunnudagaskólinn. Hvern sunnudag klukkan 11:00 í Kópavogskirkju. Fljótlega eftir guðsþjónustu- eða messuupphaf heldur hópur í safnaðarheimilið Borgir og sunnudagaskólinn heldur áfram þar. Lagt er upp úr fræðslu, gleði og söng. Sagðar eru eru sögur, brúður koma í heimsókn og ýmislegt annað. Sunnudagaskólann annast til skiptis þau: Þóra Marteinsdóttir, tónskáld og kennari, Sólveig Aradóttir, nemi, Inga Harðardóttir, guðfræðingur og Sr. Sigurður.
Starf fyrir börn í 1-3 bekk. Hittast á mánudögum klukkan 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðamenn óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Dægradvöl í Kársnesskóla og farið með þau þangað aftur að kirkjustarfi loknu. Einnig verður að hafa samband við Dægradvölina og láta þau vita.
Starf fyrir börn í 4-5 bekk. Hittast á fimmtudögum kl.15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Fjölbreytt, skemmtilegt og fræðandi starf.
Sigurður Arnarson, 10/9 2011
Fermingarfræðsla fyrir þau sem ekki voru á sumarfermingarnámskeiðinu. Fræðslan hefst mánudaginn 12. september kl. 15:10 í Safnaðarheimilinu Borgum og stendur aðra hverja viku yfir veturinn.
Sigurður Arnarson, 10/9 2011
Starf fyrir börn í 1-3 bekk hefst mánudaginn 12. september n.k. frá kl.15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Fræðandi, uppbyggjandi og skemmtilegt starf.
Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðamenn óskað efitr því að náð sé í börn þeirra í Dægradvöl Kársnesskóla og farið með þau þangað aftru að kirkjustarfi loknum. Einnig verður að hafa samband við Dægradvölina og láta þau vita.
Sigurður Arnarson, 10/9 2011
Guðsþjónusta verður sunnudaginn 11. september kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Þýskur barnakór syngur nokkur lög. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flytur sig síðan í Safnaðarheimilið Borgir þar sem skólinn heldur áfram. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þær Þóra Marteinsdóttir og Sólveig Aradóttir.
Sigurður Arnarson, 10/9 2011
Biblíulestrar í Breiðholtskirkju
Fimmtudaginn 22.september hefst í Breiðholtskirkju Biblíulestraröð á vegum
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og Starfs- og leikmannaskóla kirkjunnar.
Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir stefnum og straumum í íslenskri
guðfræði á fyrri hluta síðustu aldar.
Samhliða þeirri umfjöllun verður fjallað um Jóhannesarguðspjall, tilurð
þess, efni og byggingu. Guðspjallið verður síðan lesið og nokkrir kaflar
ritskýrðir sérstaklega.
Kennari á námskeiðinu er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
Námskeiðið fer fram í Breiðholtskirkju á fimmtudögum milli 20.00 og 22.00 á
tímabilinu 22.september - 24.nóvember.
Skráning er á biskupstofu í síma 528 4000 eða á profaust@centrum.is eða
sae@mmedia.is
„Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum” Sl. 119:105
Ásta Ágústsdóttir, 9/9 2011
Á þriðjudögum kl. 12:10 er bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni. Þar er lögð áhersla á fyrirbæn og kyrrð og viðeigandi tónlist leikin. Fyrirbænaefnum má koma til skrifstofunar í Borgum eða með því að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Á eftir hverri stund er boðið upp á veitingar í Borgum gegn vægu verði.
Sigurður Arnarson, 5/9 2011
Mál dagsins hefst aftur þriðjudaginn 6. september og er vikulega frá klukkan 14:30-16:00 í stóra salnum í safnaðarheimilinu Borgum. Stundin hefst á samsöng, sem Lenka Mátéová og Friðrik Kristinsson, stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur hafa umsjón með. Um klukkan 15:10 er flutt stutt erindi. Reglulega flytja félagar úr “Máli dagsins” erindi eða gestir koma í heimsókn. Meðal annars heimsóttu eftirtaldir aðilar starfið síðasta vetur: Ólafur Kjartan Sigurðsson, óperusöngvari og flutti hann erindi um óperuna “Rigoletto” og söng nokkur lög, Gunnar Eyjólfsson. leikari sagði frá æviminningum sínum, Sveinn Einarsson flutti erindi, dr. Ágúst Valfells flutti erindi um kjarnorku, Auðunn Atlason talaði um Evrópumál, Runólfur Þórðarson sagði frá Franz List, Svava Bernharðsdóttir og Rannveig Sigurbjörnsdóttir sögðu frá Afríku, Kristjana Jónsdóttir sagði frá Ólöfu, dverg, Gyða Arnórsdóttir las úr minningarbrotum sr. Bjarna Þorsteinssonar, Rannveig Löwe sagði frá endurminningum sínum, Ljóðahópur Gjábakka las nokkur ljóð, Sólrún Halldórsdóttir talaði um myndlistina, Ásgeir Jóhannsson, sagði frá Kópavogsskáldi, Sigurður Skúlason las úr völdum verkum, Sýning verka Barböru Árnason skoðuð í Gerðarsafni, Bjarki Sveinbjörnsson sagði frá Tónlistarsafni Íslands, Örn Arnarson fjallaði um trú í textum Matthíasar Jochumssonar, Kristín Arnþórsdóttir fjallaði um merka staði á Kársnesinu, dr. Sigurjón Árni Eyjgólfsson, fjallaði um Pál Postula, dr. Magnús Þorkell Bernharðsson fjallaði um Islam og dr. Karl Sigurbjörnsson flutti erindi “Vegi Guðs og manna” og áfram mætti lengi telja.
Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og rétt fyrir klukkan 16:00 er stutt helgistund. Umsjón með starfinu hafa þau: Ásgeir Jóhannsson, Sigríður Pálsdóttir, Pálína Magnúsdóttir og sr. Sigurður Arnarson
Sigurður Arnarson, 5/9 2011
Næstkomandi sunnudag 4. september hefst sunnudagskólinn aftur eftir sumarfrí. Líkt og í fyrra hefst skólinn í Kópavogskirkju með barna- og fjölskylduguðsþjónustu í umsjón sr. Sigurðar Arnarson og Þóru Marteinsdóttur. Undirleik annast Lenka Mátéová. Áhersla er lögð á gleði og innhaldsríkt samfélag og auðvitað eru allir velkomnir.
Sigurður Arnarson, 30/8 2011
Morgnarnir eru í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni) á hverjum fimmtudegi frá kl.10:00-12:00. Umsjón með starfinu hefur Inga Harðardóttir og henni til halds og trausts er Hrefna Sigurgeirsdóttir. Morgnarnir eru ætlaðir foreldrum með ung börn og lýkur morgnunum með söngstund.
Sigurður Arnarson, 30/8 2011