Mál dagsins 15. janúar
Mál dagsins hefst aftur þriðjudaginn 15. janúar eftir jólafrí. Stundin hefst kl. 14:30 á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 mun Brynhildur Guðjónsdóttir, leikstjóri Ríkharðs III í Borgarleikhúsinu segja frá uppsetningunni. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.