Mál dagsins hefst að venju þriðjudaginn 3. mars kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Kl. 15:10 til 15:30 heldur Þórður Guðnason, bóndi frá Köldukinn erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur með bæn og blessun.
Guðsþjónusta verður sunnudaginn 8. mars kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Gídeonfélaginu kynna starf sitt. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.Guðsþjó
https://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.png00Sigurður Arnarsonhttps://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.pngSigurður Arnarson2020-03-03 10:46:372020-03-17 10:02:56Guðsþjónusta 8. mars kl. 11:00
Þau sem óska eftir því að fermast og hafa ekki skráð sig geta haft samband með tölvupósti við sr. Sigurð Arnarson, sóknarprest (sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Síðsumarnámskeið verður 17. til 19. ágúst, 2020 frá kl. 9:15-12:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með byrjun september, 2020 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar).
Messur 23.
ágúst 2020 og 31. janúar 2021 og
fundur með foreldrum eftir messu.
Mikilvægt
er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi.
Í haust förum við í Vatnaskóg og
dveljum þar í einn dag. Farið verður í
Vatnaskóg og komið til baka að
Kópavogskirkju eftir kvöldmat í Vatnaskógi (dagsetning nánar tilkynnt síðar)
Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og
vetrarfræðsluhóp) verða (hálfur dagur fyrir áramót og hálfur dagur eftir áramót).
Aukatímar
gætu orðið á laugardögum kl. 11:00 ef einhverjir komast ekki á
fyrirframskipulögðum fræðslutímum.Það yrði auglýst síðar.
Bækurnar
sem eru notaðar heita: Con Dios, A ha, og Kirkjulykill (verða til sölu hjá okkur ef fólk
vill). Hægt er að fá Nýja testamenntið
gefins hjá okkur og Sálmabókin er lánuð.
Mikilvægt er að eignast bækurnar
strax og kennsla hefst í ágúst, svo við getum verið samferða í tímunum.
Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.
Í messunum og guðsþjónustunum er
beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að
þau eru á helgum stað. Beðið eru um að farsímar (snjallsímar)
séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu
stendur, það sé slökkt á þeim.
Við, sem söfnuður, eigum saman
kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Íbúar
sóknarinnar, sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna, greiða til kirkjunnar sóknargjöld
sem standa undir öllum rekstri hennar. Göngum þess vegna vel um kirkjuna okkar
og hugsum vel um hana.
Fermingardagar 2021 verða sem hér segir:
Sunnudag 21. mars, 2021, kl. 11:00
Pálmasunnudag
28. mars, 2021 kl.11:00
Skírdagur 1. apríl 2021, kl. 11:00
Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og
undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda
fermingarbarna hverju sinni. Allir eru
að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.
Æfingar fyrir fermingarmessur eru í
Kópavogskirkju, vorið 2021:
MIKILVÆGT
AÐ FÁ NETFÖNG FERMINGARBARNA OG FORELDRA TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST
GREIÐLEGA. Allar upplýsingar varðand
safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is