Guðsþjónusta 25/08/24

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 25. ágúst kl. 11.00. Sr. Sigurður Arnarson og sr. Grétar Halldór Gunnarsson Kór Kópavogskirkju syngur og Elísa Elíasdóttir er organisti.  Fermingarbörnum og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið til guðsþjónustunnar og verður stuttu upplýsingafundur fyrir þau eftir guðsþjónustuna.

Guðsþjónusta 18/08/24

Velkomin til guðsþjónustu í Kópavogskirkju, sunnudaginn 18. ágúst kl. 11.00. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari og Elísa Elíasdóttir organisti leikur fyrir safnaðarsöng. ⛪️🧡

Fermingarfræðslan

Síðsumars-fermingarfræðslan er vinsælasta fermingarfræðslunámskeiðið sem Kópavogskirkja býður upp á. Núna í næstu viku hefst námskeiðið og fer það fram dagana 20., 21, og 22. ágúst í kirkju og safnaðarheimili Kópavogskirkju. Ef þú átt eftir að skrá þitt barn þá getur þú gert það með því að ná í eyðublað (sjá skjalið hér að neðan) fylla það út og skila því til okkar í tölvupósti (kopavogskirkja@kirkjan.is) eða í póstkassa safnaðarheimilisins okkar. Við hlökkum til að taka á móti hópnum í næstu viku 🙂