Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 15. mars n.k.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 15. mars n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur þjónar fyrir altari.
Stúlkur úr 7. bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Elínar Halldórsdóttur. Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni en skólann annast þau: Ágústa Tryggvadóttir, Bjarmi Hreinsson og Oddur Örn Ólafsson.