Opið hús hjá Birtu – Landssamtökum
Birta – Landssamtök standa fyrir opnu húsi þriðjudaginn 16. desember kl 20:00 í Grafarvogskirkju.
Gestir kvöldsins verða tveir, en það eru þær:
- Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur, sem mun fjalla um streitu aðstandenda í kjölfar skyndidauða. Margrét starfar nú um stundir sem sjálfstæður meðferðaraðili en hún hefur langa reynslu af störfum í nálægð dauðans, m.a. við áfallamiðstöð Landspítalans.
- Guðrún Karls Helgudóttir prestur í Grafarvogskirkju, sem mun vera með jólahugleiðingu þar sem hún ræðir um sorg og jól.
Samveran er öllum opin og þeim að kostnaðarlausu.