Mál dagsins og „Táningurinn og Tito Schipa“
Næsta mál dagsins verður þriðjudaginn 15. mars kl. 14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Stundin hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Kl. 15:10 flytur Hrafn Andrés Harðarson, fyrrverandi bæjarbókarvörður erindið „Táningurinn og Tito Schipa – Ágrip af ævi Harðar Þórhallssonar“. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund. Allir hjartanlega velkomnir.