Kona á bæn
Á milli jóla og nýjárs færðu Hertha Wendel og börn Kársnessöfnuði höfðinglega gjöf en það er styttan“Kona á bæn“ eftir Wilhelm Beckmann. Nokkur verka Wilhelms eru í eigu safnaðarins og eru til sýnis í andyri safnaðarheimilsins Borga. Styttunni hefur verið komið fyrir utan safnaðarheimilið. Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður Kársnessóknar veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd safnaðarins og færði Herthu og börnum innilegar þakkir fyrir þessa góðu gjöf.