Mál dagsins
Mál dagsins hefur aftur göngu sína eftir jólafrí þriðjudaginn 17. janúar kl. 14:30. Stundin hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéova. Um kl. 15:10 flytur Margrét Örnólfsdóttir erindi um starf sitt, sem handritshöfundur. Meðal annars: segir Margrét frá vinnu sinni við þáttaröðina „Fangar“, sem sýnd er í sjónvarpinu þessar vikurnar. Drukkið er kaffi kl.15:30 og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Allir hjartanlega velkomnir.