Mál dagsins 14. febrúar n.k.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 14. febrúar n.k. og hefst kl. 14:30. Stundin hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur Hrafnkell V. Gíslason erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi. Stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Allir hjartanlega velkomnir.