Mál dagsins 11. desember kl. 14:30-16:00
Mál dagsins verður þriðjudaginn 11. desember kl.14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Stundin hefst á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 verður flutt erindi. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.