Mál dagsins hefst aftur þriðudaginn 7. september n.k. kl.14:30
Mál dagsins hefur aftur göngu sína þriðjudaginn 7. septmeber n.k. kl.14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Friðrik Kristinsson, kórstjóri og Lenka Mátéová, kantor leiða samsöng. Flutt verður svo 20 mínútna erindi og kaffi drukkið kl.15:30. Stundinni lýkur með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.